Varsjáarvíti í uppbótartíma tryggði Brann stig í Íslendingaslag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2026 19:51 Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson átti flottan leik með Midtjylland í Evrópudeildinni í kvöld. Getty/Domenico Cippitelli/ Brann tryggði sér jafntefli á móti danska liðinu Midtjylland með dramatískum hætti í kuldanum í Bergen í kvöld.
Leikurinn var fjörugur og frábær skemmtun en endaði með 3-3 jafntefli. Elías Rafn Ólafsson hafði varið hvað eftir annað í marki Midtjylland en tvö síðustu mörk norska liðsins komu úr vítaspyrnum. Brann náði þarna í eitt afar dýrmætt stig í baráttunni um sæti í umspilinu. Freyr Alexandersson er þjálfari norska liðsins. Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson gátu ekki spilað með Brann vegna meiðsla. Brann sótti grimmt í leiknum og fékk vissulega fjölmörg færi til að fá enn meira út úr leiknum. Þeir áttu því skilið að fá jöfnunarmark. Þeir fengu þó hjálp frá myndbandsdómurum sem tóku eftir hendi í teignum þegar komið var langt inn í uppbótartíma. Dómarinn fór í skjáinn og dæmdi víti. Joachim Soltvedt jafnaði metin úr vítinu. Brann jafnaði þrisvar leikinn en fékk á sig þriðja markið aðeins tveimur mínútum eftir að þeir jöfnuðu í annað skiptið. Elías Rafn var mjög flottur í marki Midtjylland og varði átta skot í leiknum, þar af úr mjög góðum færum á lokamínútunum. Martin Erlic skoraði tvö mörk fyrir Midtjylland, fyrsta mark liðsins á 4. mínútu og þriðja markið á 70. mínútu. Junior Brumado kom danska liðinu í 2-1 á 31. mínútu. Noah Holm jafnaði metin í 1-1 á 19. mínútu og Emil Kornvig jafnaði í 2-2 á 68. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Midtjylland er í mjög góðri stöðu þrátt fyrir jafnteflið en liðið er í fjórða sæti Evrópudeildarinnar. Brann byrjaði mjög vel í Evrópudeildinni en hafði gefið eftir og þetta var aðeins þriðja stigið í síðustu fjórum leikjum. Það kemur liðinu upp í 21. sæti en 24 efstu liðin komast í umspilið. Daniel Tristan Guðjohnsen fékk að spila síðustu sex mínúturnar í 0-1 tapi Malmö á heimavelli á móti Rauðu Stjörnunni. Vasilije Kostov skoraði eina mark leiksins strax á 16. mínútu. Malmö er úr leik fyrir lokaumferðina.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni HK flaug upp í Olís-deildina Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille KR - Njarðvík | Toppslagur í Vesturbænum O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Gerpla fullkomnaði frábæra bikarhelgi Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Rodman í heiðurshöll WWE Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjá meira