75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 11:01 Dagur Sigurðsson hefur unnið alla þrjá leikina á móti Íslandi á síðustu tveimur stórmótum sem sá til þess að hann vann silfur á HM í fyrra og brons á EM í ár. EPA/Henning Bagger/Thomas Traasdahl Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson. Króatar unnu eins marks sigur á Íslandi í leiknum um bronsið og þetta var annar sigur Króata á íslenska landsliðinu á þessu móti. Krótar unnu einnig Ísland í fyrsta leik liðanna í milliriðlinum. Báðir leikirnir unnust með aðeins einu marki. Ísland tapaði aðeins þremur leikjum á þessu Evrópumóti en þriðja tapið kom í undanúrslitaleiknum á móti verðandi Evrópumeisturum Dana. Íslenska landsliðið tapaði líka aðeins einum leik á heimsmeistaramótinu í fyrra en það tap kom einmitt á móti Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í Króatíu. Það tap var afar dýrkeypt en íslenska liðið hafnaði aðeins í níunda sæti mótsins þrátt fyrir að vinna fimm af sex leikjum sínum. Íslensku strákarnir hafa því aðeins tapað fjórum leikjum af fimmtán á síðustu tveimur stórmótum sínum undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar. Tíu leikjanna hafa unnist og einn endaði með jafntefli. Um leið þýðir það að 75 prósent tapleikja íslenska handboltalandsliðsins á síðustu tveimur stórmótum voru á móti Degi Sigurssyni.
Króatar unnu eins marks sigur á Íslandi í leiknum um bronsið og þetta var annar sigur Króata á íslenska landsliðinu á þessu móti. Krótar unnu einnig Ísland í fyrsta leik liðanna í milliriðlinum. Báðir leikirnir unnust með aðeins einu marki. Ísland tapaði aðeins þremur leikjum á þessu Evrópumóti en þriðja tapið kom í undanúrslitaleiknum á móti verðandi Evrópumeisturum Dana. Íslenska landsliðið tapaði líka aðeins einum leik á heimsmeistaramótinu í fyrra en það tap kom einmitt á móti Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í Króatíu. Það tap var afar dýrkeypt en íslenska liðið hafnaði aðeins í níunda sæti mótsins þrátt fyrir að vinna fimm af sex leikjum sínum. Íslensku strákarnir hafa því aðeins tapað fjórum leikjum af fimmtán á síðustu tveimur stórmótum sínum undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar. Tíu leikjanna hafa unnist og einn endaði með jafntefli. Um leið þýðir það að 75 prósent tapleikja íslenska handboltalandsliðsins á síðustu tveimur stórmótum voru á móti Degi Sigurssyni. Sigurleikir Íslands á síðustu tveimur stórmótum: (Samtals 10) 13 marka sigur á Grænhöfðaeyjum á HM 2025 (34-21) 21 marks sigur á Kúbu á HM 2025 (40-19) 5 marka sigur á Slóveníu á HM 2025 (23-18) 3 marka sigur á Egyptalandi á HM 2025 (27-24) 9 marka sigur á Argentínu á HM 2025 (30-21) 13 marka sigur á Ítalíu á EM 2026 (39-26) 8 marka sigur á Póllandi á EM 2026 (31-23) 1 marks sigur á Ungverjalandi á EM 2026 (24-23) 8 marka sigur á Svíþjóð á EM 2026 (35-27) 8 marka sigur á Slóveníu á EM 2026 (39-31) - Jafntefli Íslands á síðustu tveimur stórmótum (Samtals 1) 38-38 jafntefli á móti Sviss á EM 2026 - Tapleikir Íslands á síðustu tveimur stórmótum (Samtals 4) 6 marka tap fyrir Króatíu á HM 2025 (26-32) 1 marks tap fyrir Króatíu á EM 2026 (29-30) 3 marka tap fyrir Danmörku á EM 2026 (28-31) 1 marks tap fyrir Króatíu á EM 2026 (33-34)
Sigurleikir Íslands á síðustu tveimur stórmótum: (Samtals 10) 13 marka sigur á Grænhöfðaeyjum á HM 2025 (34-21) 21 marks sigur á Kúbu á HM 2025 (40-19) 5 marka sigur á Slóveníu á HM 2025 (23-18) 3 marka sigur á Egyptalandi á HM 2025 (27-24) 9 marka sigur á Argentínu á HM 2025 (30-21) 13 marka sigur á Ítalíu á EM 2026 (39-26) 8 marka sigur á Póllandi á EM 2026 (31-23) 1 marks sigur á Ungverjalandi á EM 2026 (24-23) 8 marka sigur á Svíþjóð á EM 2026 (35-27) 8 marka sigur á Slóveníu á EM 2026 (39-31) - Jafntefli Íslands á síðustu tveimur stórmótum (Samtals 1) 38-38 jafntefli á móti Sviss á EM 2026 - Tapleikir Íslands á síðustu tveimur stórmótum (Samtals 4) 6 marka tap fyrir Króatíu á HM 2025 (26-32) 1 marks tap fyrir Króatíu á EM 2026 (29-30) 3 marka tap fyrir Danmörku á EM 2026 (28-31) 1 marks tap fyrir Króatíu á EM 2026 (33-34)
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Íslenski boltinn Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö Íslenski boltinn Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Enski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn Sturlaðar og geggjaðar móttökur og freyðivínsglasið afhent Sport „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba Handbolti Ótrúlegt atvik í Taílandi þegar Townsend varð fyrir valtara Fótbolti Bournemouth - Liverpool | Iraola á kunnuglegum slóðum Enski boltinn Fleiri fréttir 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“