Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 21:27 Birgir Örn og eiginkona hans Sísí Ingólfsdóttir Kári Einarsson Birgir Örn Guðjónsson, frambjóðandi á lista Viðreisnar í Kópavogi, segist svekktur eftir að hafa ekki fengið kjör og íhugar hvort hann muni þiggja sæti á lista flokksins verði honum boðið sæti. Ísak Leon Júlíusson, annar frambjóðandi sem hlaut ekki kjör, er aftur á móti handviss um að hann muni þiggja sæti. „
Ég er auðvitað svekktur. Maður er í þessu til að fara alla leið en þetta kemur ekkert á óvart. Ég er náttúrulega nýr í þessu og ekki með sömu maskínu á bak við,“ segir Birgir. María Ellen Steingrímsdóttir var kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi í kvöld. Pétur Björgin Sverrisson er í öðru sæti og Arnar Grétarsson í því þriðja. Einungis var kosið um efstu þrjú sætin en annars verður raðað á lista flokksins. „Nú þarf ég að hugsa það og skoða. Það er ekkert ákveðið,“ segir Birgir aðspurður hvort hann myndi þiggja sæti á listanum. Birgir Örn vakti athygli fyrr í vikunni þegar hann greindi frá því að hann hafi verði kallaður á fund ritara Viðreisnar vegna sögusagna um ofbeldi. Hann telur lygasögurnar þó ekki hafa haft áhrif á framboð hans. „Þetta var ekki sú barátta sem ég ætlaði að gera en eitt barna minna var á sjúkrahúsi megnið af tímanum og svo kemur þetta upp, þannig að hugurinn var ekki alveg þarna. Ég ætlaði að leggja meiri orku í þessa baráttu en gerði ekki. Ég er bara sáttur við það sem ég gerði og held ótrauður áfram.“ Einn yngsti frambjóðandinn Ísak Leon, laganemi, bauð fram krafta sína í þriðja sætið á listanum en hlaut ekki kjör. Hann er samt sem áður handviss um að þiggja sæti á lista flokksins fái hann boð. Ísak er einn yngsti frambjóðandinn í sögu Kópavogs, enda einungis 22 ára. „Ég átti ekki von á því að sigra en ég sé núna að ég er með flest atkvæði í þriðja sæti þannig að ég náði öllu sem ég ætlaði að ná og er mjög sáttur,“ segir hann. Ísak Leon með kærastanum sínum Ísaki LeóKári Einarsson Í framboðskynningu sinni sagði Ísak að Kópavogsbær væri mikil náttúruparadís en hann þekkti þó af eigin reynslu að henni geta fylgt hættur. „Ég og pabbi fórum á kajak í sumar og hann datt út úr kajaknum og komst ekki aftur upp á. Þetta var úti á miðju vatni og ég heyrði sem betur fer í honum kalla og kom til hans og þá var hann búinn að vera í fimmtán mínútur úti á vatninu að reyna að komast upp á kajakinn en hann snerist alltaf. Hann náði að taka í fótinn á mér og ég náði að róa í land,“ segir hann. Vegna þessa vilji hann taka öryggismál í bænum föstum tökum.
Kópavogur Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira