Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Samúel Karl Ólason skrifar 13. febrúar 2026 10:12 F/A-18E Super Hornet herþotu lent á flugmóðurskipinu USS Gerald R. Ford í síðustu viku. Skipið hefur verið á Karíbahafinu þar sem áhöfn þess hefur tekið þátt í árásum á meinta smyglbáta og áhlaupi í Venesúela þegar forseti landsins var numinn á brott með hervaldi. Sjóher Bandaríkjanna/Tajh Payne Bandaríkin eru að senda stærsta flugmóðurskip heimsins aftur til Mið-Austurlanda. Þá verða tvö slík skip og öflugir fylgiflotar þeirra á svæðinu á sama tíma og Donald Trump er að reyna að þvinga klerkastjórn Íran til að semja um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni.
Bandaríkjamenn hafa þegar sent flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln til Mið-Austurlanda, auk annarra herskipa, fjölda herflugvéla og önnur hergögn og loftvarnarkerfi á svæðið. Í vikunni bárust svo fregnir af því að Trump væri að íhuga að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda og í gær sagði Wall Street Journal frá því að stjórnendum flugmóðurskipsins USS George H.W. Bush hefði verið skipað að undirbúa ferð þangað. Sjá einnig: Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Í gærkvöldi gaf Trump svo þá skipun að flugmóðurskipið USS Gerald Ford yrði sent aftur til Mið-Austurlanda. Þar var skipið í fyrra en því var siglt til Karíbahafsins undir lok ársins, þar sem áhöfn þess hefur tekið þátt í árásum á báta sem eiga að hafa verið notaðir til þess að smygla fíkniefnum. Skipið var einnig notað þegar Nicolás Maduro, fyrrverandi forseti Venesúela, var numinn á brott af bandarískum hermönnum. Ein viðræðulota hefur átt sér stað milli erindreka frá Bandaríkjunum annars vegar og klerkastjórnarinnar hins vegar. Þær fóru fram í Óman en skiluðu engri niðurstöðu. Trump sagði á dögunum að til stæði að halda nýjar viðræður en þær hafa ekki átt sér stað og er óljóst hvort og hvenær þær eiga að gerast. Þess í stað hafa skilaboð gengið á milli fylkinga gegnum milliliði í Óman og Katar, samkvæmt AP-fréttaveitunni. Forsetinn hefur sagt að árásir gegn klerkastjórninni komi til greina en ráðamenn í öðrum ríkjum í Mið-Austurlöndum hafa varað við þeim. Þeir óttast að þær gætu leitt til umfangsmeiri átaka á svæðinu.
Bandaríkin Donald Trump Íran Hernaður Venesúela Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira