Flutti kíló af kókaíni inn í borði og flúði lögreglu á hjóli Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. febrúar 2026 09:03 Pakkning af ólöglegum eiturlyfjum. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur Litháum, sem eru sakaðir um tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Þremenningarnir eru sagðir hafa staðið að innflutningi kílós af kókaíni, 85 til 86 prósent að styrkleika, sem samsvarar 95 til 96 prósent af kókaínklóríði.
Fíkniefnin voru falin í steyptu borði sem var flutt til landsins með póstsendingu frá Bandaríkjunum í ágúst árið 2024. Lögregla lagði hald á sendinguna á póstmiðstöð Íslandspósts að Stórhöfða, fjarlægði efnin og kom fyrir eftirfarar- og hlustunarbúnaði. Einn ákærðu, sem við skulum kalla X og var skráður móttakandi sendingarinnar, sótti hana og fór með hana á bifreiðaverkstæði. Þangað kom Y og sótti sendinguna og fór með hana í bílskúr í Álfheimum. Þriðji maðurinn, sem við skulum kalla Z, hitti Y sama dag í bílskúrnum, þar sem þeir opnuðu sendinguna. Y var handtekinn skömmu síðar, fyrir aftan verslunarkjarna í Álfheimum, og við leit á honum fannst eftirfararbúnaðurinn sem lögregla hafði komið fyrir í sendingunni. Z komst hins vegar undan lögreglu á hjóli en var handtekinn á heimili sínu um kvöldið. Heima hjá Z fundust 13 grömm af kókaíni, tæp 3 grömm af amfetamíni og þá fundust í ferðatösku í Álfheimum 2.700 töflur af Cenforce Soft, sem inniheldur virka efnið Sildenafilum, 100 töflur af Sildenafil og 2,3 grömm af Sildenafil. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira