„Sannkölluð rokk og ról goðsögn“ fallin frá Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 23:00 Neil Sedaka er látinn, 86 ára að aldri. Getty/Sarah Stier Bandaríski söngvarinn og lagahöfundurinn Neil Sedaka er látinn, 86 ára að aldri. Söngvarinn öðlaðist heimsfrægð á sjöunda áratug síðustu aldar og átti marga slagara á toppi vinsældarlista á sínum tíma, meðal annars lög á borð við Oh! Carol, Breaking Up Is Hard To Do og Bad Blood.
TMZ greinir frá andláti Sedaka, en hann er sagður hafa kennt sér meins í morgun og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús. „Fjölskylda okkar er í sárum vegna sviplegs andláts okkar ástkæra eiginmanns, föðurs og afa, Neil Sedaka. Sannkölluð rokk og ról goðsögn, sem var milljónum innblástur, en mikilvægast af öllu fyrir okkur sem vorum nógu heppin að þekkja hann, var hann stórkostleg manneskja sem verður sárlega saknað,“ er haft eftir fjölskyldu tónlistarmannsins í umfjöllun TMZ. Sedaka hlaut fimm tilnefningar til Grammy-verðlauna á ferlinum og var sæmdur þeim heiðri að fá stjörnu í sínu nafni á Hollywood Walk of Fame. Þá var hann meðal stofnenda hljómsveitarinnar The Tolkens á sjötta áratugnum. Honum hefur einnig brugðið fyrir á sjónvarpsskjánum í gegnum tíðina, en hann fór til að mynda með gestahlutverk í þáttunum King of Queens og The Carol Burnett Show, auk þess sem hann var gestadómari í annarri þáttaröð af American Idol. Neil Sedaka lætur eftir sig eiginkonuna Lebu Strassberg, sem er fædd 1962, og tvö börn.
Andlát Tónlist Bandaríkin Hollywood Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Lífið Fleiri fréttir Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Sjá meira