Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Árni Sæberg skrifar 3. mars 2026 12:08 Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra. Vísir/Ívar Fannar Fjármálaráðherra segir átök í Mið-Austurlöndum, með tilheyrandi hækkun olíuverðs, slæm tíðindi fyrir baráttuna við þráláta verðbólgu. Hann eigi í góðu samtali við aðila vinnumarkaðar og muni kynna aðgerðir á allra næstu dögum.
Líkt og Vísir hefur fjallað um hafa átökin í Íran og víðar í Mið-Austurlöndum valdið hærra olíuverði á heimsmarkaði. Reuters segir hækkunina mega einna helst rekja til óvissu með siglingar um Hormússund, sem er inngangurinn að Persaflóasvæðinu og lykilflutningaleið fyrir olíu og jarðgas, en 20 prósent af olíu og gasi heimsins fer þar um. Þegar hafa verið gerðar árásir á nokkur skip sem hafa siglt um svæðið. Enn meira krefjandi og aðkallandi Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður ræddi þessi tíðindi við Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Hann segir þau neikvæð í ljósi áframhaldandi baráttu við verðbólgu. „Þetta er að vísu verðbólga sem er af öðrum toga og ekki hluti af því þensluvandamáli sem við höfum verið að eiga við. En þetta gerir verkefnið enn þá meira krefjandi og aðkallandi.“ Ástandið hafi verið rætt á ríkisstjórnarfundinum, meðal annars þýðing þess fyrir efnahagsmálin hér á landi. Verið sé að undirbúa greiningu á áhrifum í fjármálaráðuneytingu, sem verði lögð fyrir ríkisstjórn. „Þetta eru auðvitað atburðir sem eru að þróast á meðan við erum að tala. Þannig að það er svolítið erfitt að átta sig á því nákvæmlega hvernig þetta mun fara. En þetta er bolti sem við höfum næmt auga á.“ Í góðu samtali við vinnumarkaðinn Að loknum síðasta fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag boðaði Daði Már aðgerðir á allra næstu dögum í baráttunni gegn verðbólgunni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við fyrir fjórtán mánuðum, í desember 2024, en síðan hafa vextir lækkað hægar en vonast var til og tólf mánaða verðbólga hefur heilt yfir aukist. Hún stendur í stað á milli mánaða samkvæmt nýjustu mælingu og mælist rúmlega fimm prósent. Þú boðaðir fyrir helgi að þið ætlið að bregðast við með aðgerðum vegna verðbólgu. Er búið að ákveða eitthvað? „Við erum núna í mjög gagnlegu samtali við aðila vinnumarkaðarins um hvað við munum gera og hvenær.“ Hvenær má búast við að það fréttist eitthvað um frekari aðgerðir? „Á allra næstu dögum, en þetta er flókið verkefni, krefst samhæfingar og það er það sem við erum að vinna í.“ Þess má geta að forveri Daða Más í starfi fjármálaráðherra til margra ára, Bjarni Benediktsson, mætti til starfa sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í gær. Því má ætla að hann sé meðal þeirra sem Daði Már á í góðu samtali við.
Efnahagsmál Verðlag Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Bandaríkin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira