Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson og Ragna Sigurðardóttir skrifa 19. mars 2026 08:15 Í dag verða greidd atkvæði á Alþingi um tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Greiðslur almannatrygginga eru þær upphæðir sem Tryggingastofnun greiðir þeim sem annað hvort missa starfsgetuna og fá því greiddan endurhæfingarlífeyri eða örorkulífeyri - eða ellilífeyri þegar fólk hættir að vinna sökum aldurs. Þetta er eitthvað sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur lagt áherslu á meðal annars í ljósi þeirrar kjaragliðunar sem hefur átt sér stað milli þessara hópa og launþega á vinnumarkaði. Hvað er kjaragliðnun? Kjaragliðnun er kerfisbundið vanmat á launaþróun við útreikninga á upphæðum endurhæfingar-, örorku- eða ellilífeyris sem leiðir til þess að kjör þeirra sem eru óvinnufærir eða hættir að vinna dragast sífellt aftur úr þeim sem geta unnið. Þetta á fyrst og fremst við um þá hópa sem fá lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins og í minna mæli þau sem eiga inni ríkuleg réttindi hjá lífeyrissjóðum. Þeir hópar sem frumvarpið kemur til með að hafa mest áhrif á eiga í langflestum tilvikum rétt á greiðslum sem eru lægri en lágmarkslaun. Þeir hafa dregist kerfisbundið aftur úr þegar kemur að kaupmætti og eiga síður efni á að standa straum af kostnaði við húsnæði, mat, lyf og læknisþjónustu. Til þess að snúa þessari þróun við og tryggja þessum hópum mannsæmandi kjör leggjum við til að greiðslur þeirra fylgi launavísitölu Hagstofu Íslands í stað þess að fylgja mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins á launaþróun. Er verið að kollvarpa kerfinu? Stutta svarið er nei. Umfangsmiklar breytingar voru hins vegar gerðar á almannatryggingakerfinu af síðustu ríkisstjórn sem nutu stuðnings allra flokka á Alþingi. Þær breytingar miðuðu að því að auka hvata þeirra sem metnir hafa verið óvinnufærir að hluta, til að taka þátt á vinnumarkaði. Var það gert í ljósi þess að rannsóknir sýna að atvinnuþátttaka að því marki sem fólk hefur getu til getur haft jákvæðar afleiðingar á heilsu og lífsgæði meðal annars. Umræddar breytingar tóku gildi síðastliðið haust og of snemmt er að segja til um nákvæm áhrif þessara breytinga nú. Liður í því átaki að hvetja fólk til atvinnuþátttöku tók hins vegar gildi árið 2023, þegar ákvörðun var tekin um að lengja tímabil endurhæfingarlífeyris úr þremur árum í fimm. Við þessa breytingu fjölgaði þeim sem áttu rétt á endurhæfingarlífeyri en nýgengi örorku lækkaði hins vegar. Þetta nýja kerfi hefur mætt gagnrýni undanfarið, til að mynda í ályktun frá Læknafélagi Íslands sem þó var send inn sem umsögn um launavísitölutengingu almannatrygginga. Snýr sú gagnrýni fyrst og fremst að greiðslum til þeirra sem metnir eru með hlutaörorku sem eiga jafnframt rétt á greiðslum frá lífeyrissjóðum. Rétt er að benda á að umrætt frumvarp um tengingu almannatrygginga við launavísitölu hefur mest áhrif á þá hópa sem eiga ekki áunnin réttindi hjá lífeyrissjóðum og búa því við lægstu greiðslur frá sameiginlegum sjóðum. Samspil lífeyrisgreiðslna frá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum landsins er vissulega nokkuð flókið fyrirbæri en í einföldu máli er það þannig að eftir því sem fólk á meiri réttindi í lífeyrissjóðum þá fær fólk þeim mun minna frá Tryggingastofnun (sem er fjármögnuð af ríkissjóði). Með því að láta greiðslur almannatrygginga fylgja launavísitölu er tryggt að vægi greiðslna frá Tryggingastofnun muni frekar aukast en að dragast saman og samhliða því má vænta þess að stuðningur nái til þeirra sem minnst réttindi hafa hjá lífeyrissjóðum. Setur ríkissjóð sannarlega ekki á hliðina Af umræðu má draga þá ályktun að öryrkjar búi við fjárhagslega góða stöðu og að öryrkjar megi ekki fá hærri greiðslur en fólk fær á lágmarkslaunum. Það er hins vegar ekki alveg raunin að fjárhagsleg staða öryrkja sé alltaf góð. Fjölmargir búa við mjög erfiðar aðstæður líkt og fólk glímir einnig við á vinnumarkaði sem er á lægstu laununum. Verkefni samfélagsins á að vera það að tryggja að fólk sem býr við kröppust kjör, lágar tekjur eða er á lífeyri, nái samt sem áður endum saman. Á vinnumarkaði standa verkalýðsfélög og önnur samtök launafólks vörð um launakjörin þar sem kjarasamningar eru endurnýjaðir með reglulegum hætti. Varðandi réttindi öryrkja og ellilífeyristaka eru það hagsmunasamtök þessara hópa sem standa vörð um réttindi með hagsmunagæslu en ekki með því að semja um kjörin með beinum hætti. Því skiptir miklu máli að stjórnvöld á hverjum tíma standi vörð um stöðu þessara hópa einnig. Þær breytingar sem verið er að gera munu ekki setja ríkissjóð á hliðina. Raunar hafa kjarasamningar sem gerðir hafa verið undanfarin ár kostað ríkissjóð meira en þessar breytingar munu gera verði þær samþykktar á Alþingi. Það þarf hins vegar að vera skýr forgangsröðun fjármagns til velferðarkerfisins þannig að við tryggjum stöðu þeirra sem eru verst settir. Það er sýn jafnaðarstefnunnar að styðja við þessa hópa þannig að fólk þurfi ekki að búa við fátækt, sem þekkist því miður enn í samfélaginu þrátt fyrir það að við búum í ríku landi. Í ofanálag er þekkt að fátækt hafi afgerandi neikvæð áhrif á heilsu fólks - og það er sýn okkar að forgangsraða eigi fjármunum þannig að þeir sem búa við kröpp kjör en jafnframt heilsubrest sem veldur óvinnufærni geti búið við sem best lífsskilyrði. Skref í átt að stöðvun kjaragliðnunar ellilífeyristaka og öryrkja Tenging almannatrygginga við launavísitölu er stórt skref í átt að því að stöðva þá kjaragliðnun sem hefur átt sér stað á milli vinnumarkaðarins og þeirra sem geta ekki unnið vegna fötlunar, heilsubrests eða aldurs. Við fögnum þeim breytingum og einsetjum okkur að standa áfram vörð um fólkið í landinu sem mest þarf á málsvara á Alþingi að halda. Höfundar eru þingmenn Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristján Þórður Snæbjarnarson Ragna Sigurðardóttir Eldri borgarar Félagsmál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun