Handbolti

„Vörnin var ekki nægi­lega góð og við eigum inni þar“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson á hliðarlínunni á sínum gamla heimavelli að Hlíðarenda.
Snorri Steinn Guðjónsson á hliðarlínunni á sínum gamla heimavelli að Hlíðarenda. vísir/anton

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, var nokkuð brattur eftir tapið gegn Svíþjóð, 33-35, í kvöld. Hann vildi sjá íslenska liðið spila sterkari vörn.

„Ég er alveg ágætlega sáttur með þessa frammistöðu. Við vorum að spila á móti góðu liði og þetta var bara jafn leikur. Appelgren er kannski svolítið munurinn á liðunum í seinni hálfleik,“ sagði Snorri í samtali við Vísi eftir leikinn á Hlíðarenda. 

„Fram á við erum við bara að skapa það sem við viljum. Það kemur smá kafli í seinni hálfleik þar sem er smá hik á þessu. Við fáum svo of mikið af mörkum á okkur og náum okkur einhvern veginn ekki í takt varnarlega og kannski þar af leiðandi er markvarslan ekki mikil. En ég er ekki fúll með þetta; svekktur með tapið og allt það en þetta var bara skemmtilegur leikur og ég fékk fullt af svörum.“

Snorra fannst sóknarleikur Íslands nokkuð góður í kvöld.

„Þegar við fundum taktinn þar þá var hann heilt yfir mjög góður. Ég var að prófa einhverja hluti og einhverjar uppstillingar og ég var bara sáttur með það,“ sagði Snorri sem var öllu ósáttari við varnarleik Íslands. 

„Mér fannst það eiginlega bara alveg frá byrjun að við værum ekki alveg í takti þar. Við fengum mikið af sex metra færum á okkur og slíkt og við þurfum bara að skoða það.“

Markverðir Íslands vörðu aðeins samtals tíu skot í leiknum en fengu takmarkaða hjálp frá vörninni.

„Auðvitað er þetta alltaf eitthvað beggja blands og samkvæmt tölfræðinni okkar erum við að fá mikið af sex metra færum. Mér fannst vörnin bara ekki nægilega góð og við eigum inni þar. Auðvitað erum við líka aðeins að rótera og prófa hluti og ég var ekkert alltaf með mína langsterkustu varnarlínu inni á í leiknum,“ sagði Snorri. 

„Til þess eru líka leikirnir gerðir og hérna en það breytir því ekki að þú vilt alltaf fá aðeins meira og vilt vinna leikinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×