Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. mars 2026 12:02 Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir útlti fyrir sama veður fram á nótt. Um þrjátíu lið geta ekki sótt Goðamótið sem fram fer á Akureyri um helgina vegna óveðurs. Víðtækar veðurviðvaranir eru nú í gildi víðast hvar á landinu og verða til morguns og lokanir á vegum á Vesfjörðum og á Norðurlandi, veðurfræðingur segir útlit fyrir vont veður fram á nótt.
Óveðrið hefur haft víðtæk áhrif en allt innanlandsflug í dag hefur verið fellt niður auk alls millilandaflugs. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair er stefnt að því að flug verði á áætlun á morgun en farþegar eru hvattir til að fylgjast með veðurspám. Þá var óvissustig vegna krapaflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum í gildi til klukkan ellefu í morgun. Veðrið snúið mótinu á hvolf Um helgina fer fram Goðamót Þórs á Akureyri í 6. flokki karla en 82 lið voru skráð til leiks. Þriðjungur kemst ekki. Sveinn Elías Jónsson formaður knattspyrnudeildar Þórs segir veðrið hafa sett strik í reikninginn. „Þetta er í raun bara búið að snúa mótinu alveg á hvolf. Og því miður þá verður þetta svona hvorki fugl né fiskur, þetta mót sem er í raun stærsta Goðamót hjá okkur og fullt af liðum af höfuðborgarsvæðinu að koma og einnig að vestan og frá Eyjum og fleiri stöðum og því miður þá komast liðin ekki núna. Reyndar komu Stjörnumenn í gær þannig að þeir ætla að mæta og það er bara frábært.“ Sveinn segir að Þórsarar hafi brugðist við í vikunni þegar útlit var fyrir hvernig veðrið yrði og að færð myndi spillast. Stefnt sé á að halda annað mót í apríl. „Þetta er orðið erfiðara og erfiðara að ná liðum norður á mótin, við finnum það alveg. Þannig að það er auðvitað rosalega svekkjandi þegar veður setur svona mikið strik í reikninginn. En þá þurfa menn bara að reyna að hugsa um hlutina aðeins upp á nýtt og reyna að gera þetta eitthvað því að að þessir krakkar, þeir elska það þegar þeir komast út á land og koma í gistingu og allur þessi pakki.“ Útlit fyrir svipað veður í dag Vegir víðast hvar á norðan og vestanverðu eru lokaðir vegna veðurs, meðal annars á Vestfjörðum og Norðurlandi. landinu Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Vegagerðinni segir að Holtavörðuheiði enn lokuð. Þá verður hættustigi lýst yfir við Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum klukkan fimm í dag. „Staðan er þannig að Holtavörðuheiðin er ennþá lokuð. Það gengur á með þessum dimmu éljum og mér skilst á þeim sem eru þarna uppi að það sjáist ekki á milli stika. Og það er eins og er hægt að fara Laxárdalsheiðina en þar er líka skafrenningur og blint í Húnavatnssýslum og Öxnadalsheiðinni var lokað núna fyrir hádegi. Það er út af því sama, það er sem sagt hvasst og mikil blinda og það er ekki að sjá að það séu neinar breytingar á þessu í dag, má eiginlega segja. Þetta er bara svona svipaður éljagangur og styrkur í vindinum.“ Staðan sé skárri suðvetanlands og ágætt yfir Hellisheiði og Þrengsli. Einar segist búast við að veður og færð verði með svipuðu móti í dag og fram á nótt. „Það er auðvitað skafrenningur en ekkert voðalega blint og þetta hefst nú alveg og þeir sem eru að fylgjast með þessu hjá Vegagerðinni eru nú bara nokkuð bjartsýnir á að það verði ekki breyting á í dag,“ segir Einar sem bætir því þó við að það fari eftir því hvernig vindakerfin sæki að landinu, erfitt sé að sjá fyrir um stöðu mála á heiðum með meiri fyrirvara en einum til tveimur klukkutímum. Þetta veður verður alveg fram á kvöld og nótt? „Já, í kvöld og nótt. Síðan sjáum við breytingar í fyrramálið. Snemma í fyrramálið þá bæði gengur vindur dálítið niður og éljunum fækkar. Þannig það verður talsvert annað veður í fyrramálið þegar við vöknum heldur en var í morgun. En síðan bara rekur hvert veðrið annað og lægðirnar eru hér djúpar og krappar og fara hérna meðfram okkur áfram næstu daga. Þannig að við verðum áfram í einhverjum svona vetraraðstæðum og einhvers konar samgönguörðugleikum á landinu eins og verið hafa núna undanfarna hvað, sjö til tíu daga.“
Veður Akureyri Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira