Traust fæst ekki með orðum einum saman – Verkalýðsfélög eru fyrirmyndir Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar 31. mars 2026 12:02 Verkalýðsfélög verða að standast eigin kröfur. Verkalýðsfélög gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þau eiga að standa vörð um réttindi launafólks, berjast fyrir bættum kjörum, öryggi í starfi, auknu jafnrétti og sanngjörnum vinnubrögðum. Þau gera kröfur til atvinnurekenda um gagnsæi, fagmennsku, virðingu og réttlæti. Það er bæði eðlilegt og nauðsynlegt. Þá vaknar einföld og mikilvægt spurning: Ef félag gerir kröfur um vönduð vinnubrögð, skýra stjórnsýslu og jafnræði, þá verður það sjálft að standast sömu kröfur. Það dugir ekki að tala um réttlæti út á við ef það skortir inn á við. Það dugir ekki að gagnrýna atvinnurekendur fyrir skort á gagnsæi ef félagsmenn upplifa sjálfir að upplýsingar séu óskýrar, aðgengi takmarkað og ákvarðanir teknar án nægrar upplýsingagjafar. Verkalýðsfélag er ekki aðeins skrifstofa, stjórn eða formaður. Verkalýðsfélag er fólkið sem greiðir í það. Félagsmennirnir eiga félagið. Þess vegna verða vinnubrögð þess að vera þannig að þau byggi upp traust, ekki tortryggni. Félagið á að vera fyrirmynd í framkvæmd, ekki aðeins í orði. Þetta snýst um aðgengi að upplýsingum, um skýra ferla, um virðingu fyrir lýðræðinu innan félagsins og um að allir félagsmenn upplifi að þeir standi jafnt að borði, óháð uppruna, tungumáli eða tengslum. Ef stór hluti félagsmanna er af erlendum uppruna, þá hlýtur það að vera lágmarkskrafa að þjónusta, upplýsingar og samskipti endurspegli þann veruleika. Félag sem talar fyrir öllum verður líka að vera aðgengilegt öllum. Það sama á við um gagnsæi. Félagsmenn eiga rétt á að vita hvernig og hvaða ákvarðanir eru teknar, hvaða nefndir starfa á þeirra vegum, hvernig kosningum er háttað og hvaða leikreglur gilda. Lýðræði á ekki að vera tæknilegt atriði sem aðeins fáir skilja. Það á að vera sýnilegt. Verkalýðsfélög eiga líka að vera fyrirmynd þegar kemur að starfsöryggi og mannlegri reisn. Þau berjast fyrir því að launafólk búi ekki við óvissu, skort á skýrum reglum eða vanmat á réttindum sínum. Þá verða þau einnig að þora að taka umræðuna um húsnæðisöryggi, uppsagnarfrest, félagslega ábyrgð og þá stöðu sem margir félagsmenn eru í þegar vinnan og heimilið eru samtvinnuð. Það er ekki nóg að tala um öryggi í almennum orðum. Það þarf að móta skýra stefnu sem ver fólk í raun. Traust fæst ekki með slagorðum einum saman. Traust verður til þegar orð og athafnir fara saman. Þegar félagsmenn sjá að félagið starfar eftir sömu gildum og það predikar. Þegar gagnsæi er raunverulegt. Þegar jafnræði er sýnilegt. Þegar þjónustan er fyrir fólkið, ekki kerfið. Þess vegna er spurningin ekki hvort verkalýðsfélög skipti máli. Þau gera það. Spurningin er hvort þau séu tilbúin að líta í eigin barm og vera sú fyrirmynd sem þau krefjast að aðrir séu. Því ef verkalýðsfélög ætla að leiða baráttu fyrir réttlæti, þá verða þau sjálf að byrja á því að sýna réttlæti í verki. Því réttindabarátta sem byrjar ekki heima missir trúverðugleika út á við. Verkalýðsfélög sem vilja leiða verða fyrst að sýna fordæmi. Höfundur er í framboði til formanns hjá Verkalýsðfélagi Suðurlands á B-Lista. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar