Uppgjörið:Grindavík - Njarðvík 87-97| Njarðvíkingar taka fyrsta leik með látum Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 1. apríl 2026 21:45 DeAndre Kane er algjör lykilmaður hjá Grindavík. vísir/Anton Úrslitakeppni Bónus deild karla hóf göngu sína í kvöld þar sem Deildarmeistararnir í Grindavík fengu Njarðvíkinga í heimsókn í leik eitt í HS Orku-höllinni. Eins og alltaf þegar þessi nágranna lið mætast var hart barist á gólfinu. Það var mikil barátta allt frá fyrstu mínútu og ljóst að bæði lið ætluðu að láta hvort annað hafa fyrir öllu í þessum leik. Leikurinn var mjög jafn framan af í fyrsta leikhluta en Grindavík tóku skrefið fram úr eftir því sem á leið. Jeremy Pargo í baráttunni í kvöldGuðmundur/Vísir Stóru skotin voru ekki að detta fyrir gestina á meðan þau duttu fyrir heimamenn og Grindavík leiddi með tíu stigum 24-14 eftir fyrsta leikhluta. Bæði lið skiptust á áhlaupum í öðrum leikhluta. Grindavík náði mest í tólf stiga forskot en Njarðvíkingar voru duglegir að saxa á en í hvert skipti sem þeir nálguðust einhverja endurkomu duttu stóru skotin hjá Grindavík. Njarðvík náði flottum kafla undir lok leikhlutans og náðu forskotinu niður í tvö stig með rétt um sex sekúndur eftir en sendu svo Jeremy Pargo á vítalínuna sem kom Grindavík í fjögurra stiga forskot fyrir hálfleik 41-37.Grindavík mættu grimmir til leiks í þriðja leikhluta og byrjuðu að sækja gott forskot snemma. Í hvert sinn sem Njarðvík nálgaðist komu stór skot frá heimamönnum til að halda þeim frá. Rúnar Ingi ræðir við Veigar Pál fyrirliða sinn.Guðmundur/Vísir Þegar um tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta small eitthvað hjá Njarðvíkingum og nú voru það gestirnir sem voru að setja stóru skotin. Njarðvík náði forystunni þegar um hálf mínúta var eftir af þriðja leikhluta en Jeremy Pargo sá til þess að Grindavík leiddi með minnsta mun eftir þrjá leikhluta 65-64. Milka með skot að körfu í kvöldGuðmundur/Vísir Njarðvíkingar mættu með hvelli út í fjórða leikhluta og settu hvert skotið á fætur öðru sem þvingaði Grindavík í leikhlé eftir rúmlega tvær mínútur í fjórða leikhluta. Þegar um tvær mínútur voru eftir af leiknum sauð allt uppúr og töluvert stopp varð á leiknum meðan ráðið var ráðum sínum yfir hvað skyldi fylgja á eftir - Sjá í atvik leiksins. Á endanum reyndust gestirnir frá Njarðvík vera sterkari og þeir fóru með gríðarlega öflugan tíu stiga sigur 87-97 og hrifsuðu um leið heimavöllinn í þessari seríu í bili. Atvik leiksins Uppákoman hérna þegar það eru um tvær mínútur eftir. Stjörnur og skúrkar Sven Smajlagic [23 stig] og Dominykas Milka [24 stig] voru öflugir sóknarlega fyrir Njarðvíkinga. Luwane Pipkins [19 stig] átti líka góð augnablik. Hjá Grindavík var Jeremy Pargo horn í síðu gestana en hann endaði með 25 stig. Dómararnir Bjarki Þór, Bjarni Hlíðkvist og Sófus Máni sáu um flautuna hér í HS Orku-höllinni í kvöld. Gríðarlega erfiður leikur að dæma á köflum og ég gef þeim alveg slaka með það. Stemingin og umgjörð Fyrsti leikur í úrslitakeppni og stemningin eftir því. Mikill hávaði og læti í HS Orku-höllinni bara eins og við viljum hafa það á þessum skemmtilegasta tíma ársins Viðtöl Rúnar Ingi Erlingsson að fara yfir málin með sínu liði í kvöldGuðmundur/Vísir „Ekki eitthvað sem að við viljum vera standa í“ „Mér fannst við lélegir í fyrri hálfleik sóknarlega en allt í lagi í vörn“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur eftir sigurinn í kvöld. „Við vorum að ná að loka ákveðnum svæðum og bregðast við því sem að þeir voru að ráðast á en við vorum lélegir sóknarlega en það var eiginlega um leið og við hættum að rugla í sókn og hafa smá trú á okkur og taka opnu skotin“ „Grindavík spilaði ömurlega vörn þarna og við þurfum að refsa betur og ekki leyfa þeim að komast upp með það“ „Við vorum svo rosalega skynsamir fannst mér í seinni hálfleik og vorum að nýta Milka vel undir körfunni. Fá þá til þess að koma og tvöfalda og spila einfaldan körfubolta sem gekk“ „Á sama tíma náðum við fullt af flottum stoppum og flott svona einn á einn vörn sem kannski skilaði þessu“ Það átti sér stað heldur leiðinlegt atvik þegar allt sauð uppúr þegar um tvær mínútur voru eftir. „Dwayne Lautier er með boltann á móti Kane upp völlinn sem hann á ekki að vera gera, það er sóknarvilla og svo erum við eiginlega með unnin leik og það eina sem Grindavík gat gert var að fara í eitthvað svona djöfulsins kjaftæði“ „Ég er ógeðslega ósáttur með mína menn að taka þátt í þessu bulli. Við töluðum um það þegar við undirbúum okkur að þeir eru tæpir hérna Grindvíkingarnir, það er ekkert nýtt en við ætluðum að spila körfubolta“ „Að við höfum tekið þátt í þessu rugli og látið henda mönnum út. Það er eitt að standa uppi fyrir liðsfélaganum en við þurfum að geta hafið okkur yfir svona vitleysu þannig ég þjarma að mínum mönnum að vera aðeins klókari í næstu leiki því þetta er ekki eitthvað sem að við viljum vera standa í“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur fer yfir málin með sínu liði í kvöld.Guðmundur/Vísir „Við fundum bara aldrei lausnir“ „Við vorum enganveginn á því í kvöld“ sagði Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir tapið í kvöld. „Við vorum bara gegnum gangandi og þessi fyrri hálfleikur var svo sem alveg í lagi, sérstaklega varnarlega“ „Um miðjan þriðja leikhluta virðumst við vera með þetta og svo bara einhvernveginn fer þetta frá okkur og bara hrós á Njarðvíkinga, þeir gerðu mjög vel og við ströggluðum með þetta sóknarlega“ „Það var lítið flæði og bara svona gegnum gangandi allan leikinn en þeir gerðu vel og við fundum aldrei takt. Við gáfum þessu séns hérna í restina bara hrós á Njarðvík, vel gert og við fundum bara aldrei lausnir“ Það sauð allt uppúr undir lok leiks en hver var sýn Grindavíkur á þessu? „Ekki hugmynd. Það verða einhver læti þarna og eitthvað ble ble. Ég veit það ekki og ef ég á að gagnrýna eitthvað við þetta þá fannst mér þeir [dómarar] taka alltof langan tíma í þetta en það er lítið hægt um það að segja“ Jóhann Þór viðurkenndi að sitt lið hafi misst haus í kvöld. „Ég veit ekkert með Njarðvíkurliðið en mitt lið klárlega, alveg 100%“ sagði Jóhann Þór Ólafsson. Bónus-deild karla Grindavík UMF Njarðvík
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti