Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar 4. apríl 2026 15:00 Eitt af helstu kosningaloforðum Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar fyrir síðustu Alþingiskosningar var að hún ætlaði ekki að standa fyrir frekari skattahækkunum. Það fór fyrir því fagra loforði líkt og öðrum. Hún lagði fram frumvarp til laga á Alþingi í desember 2025 þar sem hún kynnti nýjan skatt, svokallað „kílómetragjald“ sem hún réttlætti m.a. með því að ef ríkið færi ekki þá leið myndi vanta milljarða í ríkissjóð, hallinn yrði meiri og það gæti leitt til minna aðhalds, meiri þenslu og hærra vaxtastigs. Hún setti þetta því fram sem hluta af ábyrgri fjármálastjórn ríkisstjórnarinnar en ekki einungis mál sem varðaði samgöngur. Sanngjörn leið til skattahækkunar? Kílómetragjaldið er kynnt sem „sanngjörn“ leið til að láta notendur greiða fyrir notkun vegakerfisins. Þegar betur er að gáð blasir hins vegar við önnur mynd: nýr skattur sem leggst ofan á eldri skatta, með óskýr markmið og framkvæmd sem bitnar verst á þeim sem síst ráða við hann. Þrátt fyrir fyrirheit um að kílómetragjaldið eigi að leysa eldsneytisgjöld af hólmi hefur það í reynd bæst við núverandi skattkerfi. Niðurstaðan er sú að um er að ræða aukna skattbyrði sem er dulbúin sem „umbót“. Þetta er ekki kerfisbreyting heldur einfaldlega ný tekjulind fyrir ríkissjóð.Framkvæmdin bitnar helst á þeim sem minna mega sín Alvarlegasti gallinn liggur hins vegar í framkvæmdinni sjálfri. Eldra fólk og aðrir sem ekki ráða við stafrænar þjónustur standa frammi fyrir kerfi sem er þeim í reynd lokað. Þegar rangar innheimtur eiga sér stað, sem þær gera, er borgurunum vísað á flókin rafræn ferli á island.is sem margir ráða ekki við. Löng bið eftir aðstoð og flókið kerfi leiða til þess að sumir gefast upp og greiða gjaldið möglunarlaust. Þetta telst ekki vera sanngjörn skattheimta. Um er að ræða kerfi sem byggir á því að einstaklingar hafi ekki bolmagn til að verja hagsmuni sína. Þeir sem reyna að leita réttar síns í gegnum síma lenda í langvarandi bið eftir að ná sambandi við þjónustufulltrúa hjá Skattinum. Á meðan stendur rangt innheimt gjald óleiðrétt. Þetta eru ekki bara óþægindi. Þetta er kerfisbundið misrétti. Í hvað fer kílómetragjaldið? Fáir treysta því að tekjur af kílómetragjaldi muni í reynd renna til samgönguframkvæmda. Íslendingar hafa áður heyrt loforð um að tekjur af umferðartengdum gjöldum færu til vegamála, en upplifun margra er sú að fjármunirnir renni til almenns ríkisreksturs. Ökumenn greiða nú þegar verulegar fjárhæðir í gegnum eldsneytisgjöld, bifreiðagjöld og aðrar álögur án þess að sjá skýra tengingu við uppbyggingu og viðhald vegakerfisins. Án gagnsæis í ráðstöfun fjármuna er einfaldlega ekki trúverðugt að bæta við enn einu gjaldi. Þegar tengingin milli innheimtu og þjónustu er óljós, þá verður ný skattheimta ekki „sanngjörn“, heldur tortryggileg. Landsbyggðin látin borga Kílómetragjaldið bitnar verst á landsbyggðinni, þar sem akstur er nauðsyn, ekki val. Það hefur jafnvel neikvæð áhrif á notkun sparneytinna bifreiða og snýr þannig öllum hvötum á hvolf. Á meðan stjórnvöld vísa til jafnræðis, blasir við að landsbyggðin ber þyngri byrðar. Þar er bifreið ekki lúxus heldur lífsnauðsyn. Lengri vegalengdir leiða til hærri skattbyrðar. Kílómetragjaldið gerir engan greinarmun á nauðsynjaakstri og öðrum ferðum. Það tekur ekki mið af því hvort einstaklingar hafi raunhæfa valkosti við notkun einkabifreiðar. Þeir sem hafa fæst úrræði bera mestan kostnað. Refsing fyrir sparneytni Nýja kerfið snýr jafnvel við þeim hvötum sem áður voru fyrir hendi. Í stað þess að tengja gjöld við eldsneytisnotkun og þar með mengun og eyðslu færir kílómetragjaldið gjaldtökuna yfir í fastara form sem tekur ekki mið af orkunýtni. Afleiðingin getur orðið sú að þeir sem velja minni og hagkvæmari bifreiðar greiði hlutfallslega meira en áður. Þetta telst ekki aðeins ósanngjarnt heldur gengur það þvert gegn þeirri stefnu að hvetja til vistvænni valkosta. Innheimta á gráu svæði réttlætis Þegar ríkið innheimtir gjöld sem almennir borgarar eiga erfitt með að skilja, leiðrétta eða mótmæla, þá er spurningin ekki lengur hvort kerfið sé skilvirkt, heldur hvort það teljist vera réttlátt. Það hlýtur að teljast óboðlegt að byggja skattheimtu á því að hluti þjóðarinnar hafi ekki raunhæfa möguleika á að verja sig gegn mistökum kerfisins. Um er að ræða skattheimtu sem hallar á þá sem minna mega sín, svo sem eldra fólk, tæknilega óvant fólk og þá sem hafa hvorki tíma né bolmagn til að takast á við kerfið. Umhverfisrökin – þægileg afsökun Stjórnvöld vísa til loftslagsmarkmiða. Sú röksemdafærsla stenst hins vegar ekki þegar horft er til raunverulegra aðstæðna. Fólk á landsbyggðinni getur ekki hætt að aka bifreiðum sínum. Flutningafyrirtæki geta ekki hætt að flytja vörur. Þetta eru ekki valkostir heldur nauðsyn. Þegar gjaldtaka er upplifuð sem ósanngjörn og óskýr, getur hún grafið undan trausti, ekki aðeins til skattkerfisins, heldur einnig til markmiða orkuskipta sjálfra. Niðurstaða: Skattheimta sem þjónar ríkinu en ekki borgurunum Kílómetragjaldið er dæmi um stefnu þar sem hagsmunir ríkisins ganga framar réttindum borgaranna. Kerfið er flókið, stafrænt og þungt í framkvæmd, en hefur það að meginmarkmiði að afla tekna fyrir gjaldþrota ríkissjóð? Spurning hvort tilgangurinn sé m.a. að fjármagna ríkissjóð á kostnað eldri borgara, þeirra grandvaralausu og þeirra sem eiga erfitt með að verja hagsmuni sína? Spurningin sem eftir stendur er eftirfarandi:Er þetta skattkerfi byggt á réttlæti, eða á því að einstaklingar gefist einfaldlega upp? Ef stjórnvöld hyggjast halda áfram á þessari braut verða þau að svara þeirri spurningu. Að öðrum kosti er hætt við að traust, sem þegar er brothætt, glatist að fullu.Svo er kílómetragjaldið verðbólguhvetjandi. Höfundur er læknir og fullveldissinni Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Kílómetragjald Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bílar Mest lesið Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir Skoðun Má segja að börn á Íslandi hafi það gott? Hjördís Eva Þórðardóttir Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir skrifar Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Má segja að börn á Íslandi hafi það gott? Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson skrifar Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Von er ekki aðgerð Hermína Gunnþórsdóttir,Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar
Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun