Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Lovísa Arnardóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 7. apríl 2026 21:32 Albert segir Trump hvergi nefna kjarnorkuvopn. Það sé varla annað hægt en að draga yfirlýsingar hans í efa. Vísir/Vilhelm Albert Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum og fyrrverandi sendiherra, segir erfitt að rýna í nýjustu yfirlýsingar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann hafi á sínum forsetaferli gefið út ýmsar yfirlýsingar sem hann svo stendur ekki við. Það verði að gefa sér að það sama gildi nú.
Donald Trump Bandaríkjaforseti virtist fyrr í dag hóta því að útrýma írönsku þjóðinni semji þarlend stjórnvöld ekki við Bandaríkjamenn. Þetta kemur fram í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum í dag þar sem hann segir að svo geti farið að „heil siðmenning deyi í kvöld og verði ekki endurreist á ný“. Hótunin tengist fresti sem forsetinn gaf Írönum að opna Hormússund og hann hefur ítrekað framlengt. „Þetta endurspeglar þrönga stöðu hans,“ segir Albert og að Trump hafi síðustu daga reynt að leita að leið út úr þessu, út úr stríðinu, þannig að hann geti samt sem áður lýst yfir einhverjum árangri. Hann segir lofthernað Trump hafa gengið vel og Íran hafi orðið feikilegu tjóni en það sé ekki hægt að skipta um stjórnvöld með lofthernaði. „Klerkastjórnin er þarna enn þá, hún er mjög löskuð og sumir horfnir... en stjórnarfarið er það sama,“ segir Albert en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar. Hormússundið sé enn lokað og það sé tak sem Íranir hafi á atburðarásinni og Bandaríkjunum sem Trump virðist ekki hafa áttað sig á áður en hann hélt af stað þessari innrás. Í áraraðir hafi legið fyrir að ef eitthvað slíkt myndi gerast myndu Íranir loka Hormússundinu. Þröng staða heima líka Hann segir stöðu Trump ekki bara þrönga hvað varðar stríðið sjálft heldur sé staða hans einnig þröng heima fyrir. Stríðið sé afar óvinsælt og hafi verið það frá upphafi, yfir 60 prósent séu andvíg. „Þó að Bandaríkin séu ekki háð olíu frá Mið-Austurlöndum verða þau samt fyrir verðhækkunum sem það að loka Hormússundi veldur annars staðar,“ segir hann og að ríki í Asíu og Evrópu séu mjög háð vöruflutningum þaðan í gegn. Það hafi áhrif á vöruverð og hækkun á vörum frá Evrópu og Asíu skili sér þannig einnig til Bandaríkjanna. Óvinsældir stríðsins og vöruhækkanir hafi áhrif og það séu yfirvofandi þingkosningar í Bandaríkjunum í haust. Nefni hvergi kjarnorkuvopn Spurður hvort hann telji Trump vera að tala um að nota kjarnorkuvopn á Íran segir Albert hann hvergi nefna slík vopn. „Það eru margir frestir liðnir varðandi Hormússund, hann hefur bakkað út úr því, og sumir myndu segja að ferill hans sem forseti sé stráður stóryrðum sem hann hefur bakkað út úr. Ég get ekki sett mig inn í hugarheim Bandaríkjaforseta eða áttað mig á hvað hann meinar nákvæmlega með þessum yfirlýsingum. En áttum okkur á að það er ekki langt síðan hann var með stórar yfirlýsingar í garð nágranna okkar, Grænlendinga, hann hætti við það allt saman. Eigum við ekki að gefa okkur að þetta hafi verið svona yfirlýsing, að orð og efndirnar verði ekki í líkingu við það sem margir óttast nú?“
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla eldislaxi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Sjá meira