The Streets koma fram á Iceland Airwaves Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. apríl 2026 13:44 Mike Skinner er aðalsprautan í The Streets sem er án efa stærsta nafnið sem kemur fram á Iceland Airwaves í ár. Getty Búið er að tilkynna 28 listamenn sem koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í nóvember en fleiri eiga eftir að bætast við. Stærstu nöfnin sem eru nefnd þar eru breska sveitin The Streets, breska söngkonan Shygirl, íslenska stórstjarnan Daði Freyr og hið filipseysk-íslenska Yaolekre.
Iceland Airwaves tilkynnti tónlistarflytjendur og dagskrá hátíðarinnar fyrr í dag. Hátíðin fer formlega fram dagana 5.-7. nóvember og kemur þar fram úrval listamanna frá tólf löndum. Margir af heitustu upprennandi tónlistarmönnum heims koma þar fram og rjómi íslensku tónlistarsenunnar. Á dagskránni verða jafnframt þrír stærri sérviðburðir sem fara fram í Hörpu. Shygirl kemur hátíðinni af stað í Silfurbergi Hörpu þann 4. nóvember, degi síðar sameinast Daði Freyr og Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg og síðan verður botn sleginn í hátíðina 8. nóvember þegar The Streets með Mike Skinner í fararbroddi stíga á svið í Eldborg. Víkka út hátíðina „Iceland Airwaves hefur ávallt byggst á styrk íslenskrar tónlistar og í ár leggjum við mikla áherslu á innlenda listamenn. Þannig sköpum við fleiri tækifæri fyrir íslenska tónlistarmenn til að koma fram, heyrast og uppgötvast. Á sama tíma höldum við áfram að kynna spennandi upprennandi erlenda listamenn og gefa áhorfendum tækifæri til að upplifa þá á sviði áður en þeir ná alþjóðlegri viðurkenningu,“ segir Ísleifur Þórhallsson, hátíðarstjóri Iceland Airwaves, í tilkynningunni frá Senu. „Við erum einnig afar spennt að kynna þrenna stóra tónleika í Hörpu sem hluta af hátíðinni. Með því víkkum við út hvað Iceland Airwaves getur verið og sköpum nýjar leiðir fyrir gesti til að tengjast tónlist um alla borg,“ segir hann. Tónleikagestir í Hafnarhúsinu hlusta á og syngja með Daða Frey á Iceland Airwaves.Joana Fontinha Sala á svokölluðum „Early Bird“-hátíðarpössum er hafin og hefjast miðasölur fyrir sérviðburðina þrjá á næstunni. Boðið verður upp á sérstakan afslátt og forsölur á alla þrjá tónleikana fyrir þá gesti sem hafa tryggt sér hátíðarpassa. Hér að neðan má sjá þá tónlistarmenn sem koma fram á formlegri dagskrá hátíðarinnar: Adult DVD, Amor Vincit Omnia, Arima Ederra, Arny Margret, Axel Flóvent, Bana Zahiti, Bleech 9:3, David Bay, Dove Ellis, Emmsje Gauti, HÉR, Inspector Spacetime, Joe & The Shitboys, Júníus Meyvant, KOIKOI, Liim, MAMMÚT, Oyama, PISS, Pollyfromthedirt, Róshildur, RSP, Skeler, SYL, TÁR, Tunghoyrt, virgin orchestra og Yaelokre.
Iceland Airwaves Tónleikar á Íslandi Tónlist Reykjavík Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Fleiri fréttir Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum Sjá meira