Handbolti

Úr­slita­leikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“

Sindri Sverrisson skrifar
Arnar Pétursson ætlar sér að sjálfsögðu sigur í dag og með Ísland á fjórða stórmótið í röð.
Arnar Pétursson ætlar sér að sjálfsögðu sigur í dag og með Ísland á fjórða stórmótið í röð. vísir/Anton

Ísland mætir Portúgal á Ásvöllum klukkan 16 í dag í hreinum úrslitaleik um það að komast á Evrópumót kvenna í handbolta í desember. Arnar Pétursson segir búið að rýna í það sem miður fór í Færeyjum og nú verði allt lagt í sölurnar.

Ísland tapaði öðru sinni gegn Færeyjum í undankeppninni á miðvikudaginn en vegna sigurs Svartfjallalands gegn Portúgal degi síðar á Ísland enn von um EM-sæti. Hún veltur núna einfaldlega á því að liðið vinni Portúgal í dag, í lokaumferðinni, og markmið Arnars er skýrt:

„Það er að spila þennan leik þannig að við fáum allt út úr okkar leik, hámörkum alla þætti leiksins. Fókusum á núið og fáum góða frammistöðu. Þá erum við á góðri leið og líklegri til að ná okkar markmiðum,“ sagði Arnar við Val Pál Eiríksson en viðtalið má sjá hér að neðan.

Klippa: Arnar fyrir úrslitaleikinn við Portúgal

Arnar segir að tapið gegn Færeyjum svíði og ekki síst það að framlag leikmanna, til að mynda hlaup aftur í vörn, hafi ekki verið nægilega gott:

„Það gerir það. Þetta var í fyrsta sinn í mjög langan tíma, alla vega síðan ég tók við, þar sem við klikkuðum á þeim þætti leiksins. Sem er náttúrulega ekki gott. Við erum svo sem búin að skoða það saman og ég á ekki von á því að það komi fyrir aftur,“ sagði Arnar.

En við hverju má búast gegn Portúgal? Arnar segir mótherjana leita mikið inn á línuna og hafa ýmsar lausnir í varnarleik sínum:

„Portúgalska liðið er í uppbyggingu, mikil framför þarna. Þetta eru stelpur sem börðust oft við okkar 2004-lið og það eru nú ansi margar komnar úr því liði í okkar A-landslið, eins og hjá Portúgal. Þær eru með eina mjög öfluga skyttu sem við þurfum að hafa góðar gætur á,“ sagði Arnar en viðtalið má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Margt sem þarf að laga

Elín Klara Þorkelsdóttir segir sannarlega margt mega laga í leik íslenska kvennalandsliðsins eftir tap fyrir Færeyjum ytra í vikunni. Liðið á fyrir höndum úrslitaleik um EM-sæti við Portúgal að Ásvöllum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×