Golf

„Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Rory McIlroy í græna jakkanum, annað árið í röð.
Rory McIlroy í græna jakkanum, annað árið í röð. Andrew Redington/Getty Images

Rory McIlroy segist vart trúa því að hann hafi varið titil sinn á Masters-mótinu í golfi. Hann tjáði sig í viðtali við CBS eftir sigurinn.

McIlroy er sá fjórði í sögunni til að verja titil sinn á Masters-mótinu á eftir Tiger Woods, Nick Faldo og Jack Nicklaus. Enginn hafði varið titil sinn síðan Tiger Woods gerði það árið 2002.

McIlroy hafði elst við Masters-titilinn árum saman og átt marga erfiða daga á Augusta-vellinum í Georgíu áður en kom að langþráðum sigri í fyrra. Sérstakt sé fyrir hann að verja titilinn í ár.

„Ég trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir því að fá einn grænan jakka og fái núna tvo í röð. Seiglan á þessum velli síðustu ár held ég sé loksins farin að borga sig. Þetta var erfið helgi. Ég gerði megn vinnunnar á fimmtudag og föstudag og ég svo hamingjusamur að hafa hangið á þessu,“ segir McIlroy.

Ósvikin gleði á lokaholunni.Maddie Meyer/Getty Images

Hann byrjaði hringinn á skramba og skolla en fékk í kjölfarið nokkra fugla í röð og spilaði óaðfinnanlega á síðari hluta hringsins.

„Þetta var svipuð tilfinning og í fyrra. Ég fékk skramba snemma, eins og í fyrra, og svo spilaði ég fullkomið golf eftir það. Fjórir fuglar og engir skollar þangað til á lokaholunni. Það var þægilegt að hafa tveggja högga forystu þar, að hafa skekkjumörkin, annað en í fyrra,“ segir McIlroy.

McIlroy segist einnig hafa verið glaður að hafa foreldra sína á staðnum í ár en þeir voru fjarverandi í fyrra. Þeir hafi velt fyrir sér hvort þau hafi átt að mæta, að það væri happa í fyrra að þau væru ekki á staðnum.

Það sé sérstakt fyrir hann að þau hafi verið á staðnum og hann kveðst munu fagna vel með foreldrum sínum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×