Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. apríl 2026 11:19 Maður sem er grunaður í málinu var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í hádeginu. Vísir Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu réðst í handtökur í gær í tengslum við meintan innflutning fíkniefna til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar innflutning með gámaflutningaskipi Eimskips og var með viðbúnað á hafnarsvæði fyrirtækisins fyrri part dags í gær. Fréttastofa hefur upplýsingar um að hið minnsta þrír hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á málinu en sá fjöldi gæti verið meiri. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvaða efni ræðir eða í hve miklu magni. Talið er að lögregla muni krefjast gæsluvarðhalds yfir einhverjum hinna grunuðu í dag. Meðal hinna handteknu eru einstaklingar sem áður hafa komið við sögu lögreglu. Í það minnsta hefur einn þeirra verið leiddur fyrir dómara nú þegar, líkt og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan: Lögreglan verst allra frétta af málinu á þessu stigi. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn miðlægrar deildar, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Upplýsingafulltrúi Eimskips vísaði á lögreglu þegar fréttastofa spurðist fyrir um málið. Treysta á eldgamlan gámaskanna Reglulega berast fregnir af því að burðardýr séu tekin á Keflavíkurflugvelli eða um borð í Norrænu með fíkniefni í fórum sínum en sjaldnar að fíkniefni finnist í gámum sem flutt eru til lands með gámaflutningaskipum. Sú leið er þó vel til þess fallin að flytja til landsins efni í miklu magni. Lögregla var með nokkurn viðbúnað á gámasvæði Eimskips fyrir hádegi í gær.Vísir/vilhelm Lyfjastofnun Evrópusambandsins greindi frá því haustið 2024 að skipulagðir glæpahópar einblíndu sífellt meira á vöruflutninga til að smygla fíkniefnum. Um sjötíu prósent af þeim fíkniefnum sem yfirvöld í Evrópusambandinu komust yfir árið 2023 hefðu fundist í vöruflutningagámum. Í svari Tollgæslunnar við fyrirspurn Spegilsins árið 2024 sagði að Tollgæslan ætti einn sextán ára gamlan gámaskanna en líftími þeirra væri um tíu til fimmtán ár. Sigurður Skúli Bergsson tollgæslustjóri sagði hafnir á vissan hátt berskjaldaðar fyrir fíkniefnainnflutningi. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér. Lögreglumál Reykjavík Eimskip Smygl Fíkniefnasmygl með Dettifossi Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira
Fréttastofa hefur upplýsingar um að hið minnsta þrír hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á málinu en sá fjöldi gæti verið meiri. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvaða efni ræðir eða í hve miklu magni. Talið er að lögregla muni krefjast gæsluvarðhalds yfir einhverjum hinna grunuðu í dag. Meðal hinna handteknu eru einstaklingar sem áður hafa komið við sögu lögreglu. Í það minnsta hefur einn þeirra verið leiddur fyrir dómara nú þegar, líkt og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan: Lögreglan verst allra frétta af málinu á þessu stigi. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn miðlægrar deildar, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Upplýsingafulltrúi Eimskips vísaði á lögreglu þegar fréttastofa spurðist fyrir um málið. Treysta á eldgamlan gámaskanna Reglulega berast fregnir af því að burðardýr séu tekin á Keflavíkurflugvelli eða um borð í Norrænu með fíkniefni í fórum sínum en sjaldnar að fíkniefni finnist í gámum sem flutt eru til lands með gámaflutningaskipum. Sú leið er þó vel til þess fallin að flytja til landsins efni í miklu magni. Lögregla var með nokkurn viðbúnað á gámasvæði Eimskips fyrir hádegi í gær.Vísir/vilhelm Lyfjastofnun Evrópusambandsins greindi frá því haustið 2024 að skipulagðir glæpahópar einblíndu sífellt meira á vöruflutninga til að smygla fíkniefnum. Um sjötíu prósent af þeim fíkniefnum sem yfirvöld í Evrópusambandinu komust yfir árið 2023 hefðu fundist í vöruflutningagámum. Í svari Tollgæslunnar við fyrirspurn Spegilsins árið 2024 sagði að Tollgæslan ætti einn sextán ára gamlan gámaskanna en líftími þeirra væri um tíu til fimmtán ár. Sigurður Skúli Bergsson tollgæslustjóri sagði hafnir á vissan hátt berskjaldaðar fyrir fíkniefnainnflutningi. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Lögreglumál Reykjavík Eimskip Smygl Fíkniefnasmygl með Dettifossi Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira