Golf

Biðst af­sökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio Garcia hoppar hér yfir Rae’s Creek á Mastersmótinu um síðustu helgi.
Sergio Garcia hoppar hér yfir Rae’s Creek á Mastersmótinu um síðustu helgi. Getty/Andrew Redington

Spænski kylfingurinn og fyrrum Mastersmótsmeistarinn Sergio Garcia hefur beðist afsökunar á hegðun sinni á Augusta National-golfvellinum á sunnudaginn eftir að Spánverjinn braut dræverinn sinn í bræðiskasti sínu á Masters-mótinu.

Garcia vann græna jakkann árið 2017 en missti þarna algjörlega stjórn á skapi sínu á annarri holu þegar hann sló teighöggið á par-5 holunni beint í átt að brautarglompunni.

Garcia var ævareiður yfir byrjun sinni á lokahringnum, sló drævernum sínum í jörðina áður en hann sló honum aftur og braut hann á kæliboxi fyrir aftan teigmerkingu.

Hinn 46 ára gamli Garcica fékk „viðvörun vegna brots á siðareglum“ frá Geoff Yang, formanni mótsnefndarinnar.

LIV-kylfingurinn tjáði sig um atvikið eftir hringinn og sagðist ekki vera stoltur af bræðiskastinu, en hefur nú, tveimur dögum síðar, beðist formlega afsökunar.

„Ég vil biðjast afsökunar á hegðun minni á sunnudaginn á Masters-mótinu,“ skrifaði hann í yfirlýsingu. „Ég virði og met allt sem Masters-mótið og Augusta National-golfklúbburinn standa fyrir í golfíþróttinni,“ skrifaði Garcia.

„Ég sé eftir því hvernig ég hagaði mér og slík hegðun á ekki heima í íþróttinni okkar. Hún endurspeglar ekki þá virðingu og þakklæti sem ég ber fyrir Masters-mótinu, áhorfendum, mótshöldurum og golfáhugafólki um allan heim,“ skrifaði Garcia.

Afsökunarbeiðnin kemur í kjölfar umræðu um hvort Garcia fengi mögulega líftíðarbann frá Mastersmótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×