Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. apríl 2026 13:07 Nokkur fjöldi lögreglumanna var á vettvangi. Aðsend Æsileg eftirför sem lauk í Skútuvogi í Reykjavík var fyrst í höndum lögreglunnar á Vesturlandi sem fékk tilkynningu um athugavert aksturslag. Hún missti sjónar af manninum er hann ók inn í Hvalfjarðargöngin á móti umferð. Maðurinn er laus úr haldi lögreglu. „
Það var tilkynnt um athugavert aksturslag í bíl hjá Borgarnesi. Tveir lögreglumenn á lögreglubíl mæta bílnum undir Akrafjalli, í grennd við Grundartanga, snúa við á eftir honum og hann gaf í,“ segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi. Fréttastofu barst ábending um að maðurinn hefði stoppað í Borgarnesi og keyrt svo út úr bænum á miklum hraða. Hann var með hund um borð í bílnum og berfættur. Ásmundur segir lögregluþjóna hafa mætt manninum undir Akrafjalli. Þeir sneru við og eltu en misstu sjónar af honum þar sem hann ók á miklum hraða. Þá var mikil umferð á svæðinu og segir Ásmundur það með ólíkindum að ekki hafi orðið umferðarslys vegna aksturslags mannsins. Einnig hafi verið töluverð umferð í Hvalfjarðargöngunum sem maðurinn ók í gegnum. „Hann stoppaði ekki, hann jók ferðina og það síðasta sem sést til hans er að hann fer öfugt í hringtorg og á móti umferð í göngin. Eftir það sjá þau hann ekki,“ segir Ásmundur. „Það er með ólíkindum að svona akstursmáti gangi upp í svona umferð.“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók við eftirförinni í Mosfellsbæ en líkt og hefur verið greint frá fyrr á Vísi þurfti lögreglan að keyra utan í bílinn og var hann að endingu stöðvaður í Skútuvogi í Reykjavík. Hann var færður í hald lögreglu. Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi, staðfestir í samtali við Mbl að maðurinn hafi verið látinn laus eftir yfirheyrslu og skýrslutöku í dag. Við eftirförina voru lögreglupóstar settir upp við Miklubraut, Reykjanesbraut og neðar á Sæbrautinni með naglamottum ef bílnum yrði ekið þangað. Ekki náðist í lögreglufulltrúa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við vinnslu fréttarinnar.
Reykjavík Lögreglumál Borgarbyggð Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira