Viðskipti innlent

Árs­fundur Orku­veitunnar í beinni á Vísi

Boði Logason skrifar
Ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur fer fram í dag og verður í beinu streymi á Vísi klukkan þrjú.
Ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur fer fram í dag og verður í beinu streymi á Vísi klukkan þrjú. OR

Ársfundur Orkuveitunnar fer fram í dag og verður streymt beint á Vísi frá klukkan þrjú til klukkan fimm.

Á fundinum koma fram nokkrir lykilaðilar úr íslensku samfélagi, þar á meðal fjármálaráðherra, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins auk stjórnenda Orkuveitunnar.

Í tilkynningu segir að Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, flytji ávarp „þar sem hann fer yfir stöðu og framtíðarsýn fyrirtækisins á tímum mikillar eftirspurnar eftir grænni orku og uppbyggingu innviða.

Ársfundurinn er mikilvægur vettvangur þar sem rætt verður um orkuöflun, orkuskipti og þau tækifæri sem fram undan eru fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf,“ segir í tilkynningunni.

Útsendingin er opin öllum og geta áhugasamir fylgst með beint á Vísi klukkan þrjú í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×