Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Árni Sæberg skrifar 22. apríl 2026 16:58 Valmir vildi ekki þekkjast þegar hann gekk út úr dómsal í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Árni Þýsk kona á sextugsaldri hefur hlotið fimm og hálfs árs fangelsisvist fyrir innflutning á mesta magni ketamíns sem gert hefur verið upptækt hér á landi. Tveir Albanar hlutu sjö ára dóma fyrir innflutninginn.
Þetta herma heimildir Vísis en dómur þess efnis, sem kveðinn var upp þann 30. mars síðastliðinn, hefur ekki verið birtur. Aðalmeðferð í stærsta ketamínsmyglsmáli Íslandssögunnar hófst í Héraðsdómi Reykjaness í lok febrúar en í því var þremur gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á fimmtán kílóum af ketamíni og fimm kílóum af MDMA-kristöllum í september síðastliðnum. „Þetta er langmesta magn ketamíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi. Efnin fundust í bifreið við eftirlit lögreglu og tollgæslu þann 19. september. Þrír voru handteknir vegna málsins, ökumaður og tveir aðrir. Allir þrír hafa sætt gæsluvarðahaldi frá því málið kom upp,“ sagði í fréttatilkynningu lögreglu sem barst fjölmiðlum um miðjan október. Þeir þrír sem setið hafa í varðhaldi eru þau Sandra Dorothea Becker, 56 ára Þjóðverji, Sokol Dushku, 32 ára, og Valmir Qeleposhi, 38 ára. Karlmennirnir tveir eru báðir frá Albaníu. Leiddist út í smyglið vegna handtöku sonarins Vísir fjallaði ítarlega um framburð sakborninganna við aðalmeðferðina en Sandra Dorothea sagði meðal annars að hún hefði leiðst út í málið af illri nauðsyn þar sem sonur hennar hefði verið handtekinn í Frakklandi og hún hefði þurft að afla peninga til þess að greiða lögmannskostnað hans. Hún hefði sett sig í samband við fólk og sótt til þess fjármuni til þess að greiða reikninga. Þá hefði fólkið sagt að hún þyrfti að fara í frí þar sem ljóst væri að henni liði illa. Hún ætti að sækja bifreið til Berlínar og aka henni alla leið til Danmerkur og taka Norrænu til Íslands. Eftir að hún hefði skráð bifreiðina á eigið nafn hefði fólkið haft samband og tjáð henni að hún væri ekki í raun og veru á leið í frí, hún þyrfti að vinna verkefni fyrir það. Hún hefði alls ekki viljað gera það en fólkið hefði tjáð henni að það gæti fylgst með ferðum hennar. Þá hefði hún óttast fólkið og talið að það gæti skaðað eiginmann hennar eða son hennar í fangelsinu. Hún hefði átt að fá tvö til þrjú þúsund evrur fyrir ómakið, sem jafngildir um 290 til 340 þúsund krónum. Með því tók hún sénsinn á að hljóta allt að tólf ára fangelsisdóm. Samkvæmt heimildum Vísis fór sækjandi málsins á að hún yrði dæmd í sex til átta ára fangelsi. Sagðist vera fórnarlamb Þeir Sokol og Valmir hlutu talsvert þyngri dóm en Sandra Dorothea fyrir sinn hlut í málinu, eða sjö ára fangelsisvist. Í upphafi skýrslutöku fyrir dómi við aðalmeðferðin sagðist Sokol hafa búið hér á landi í þrjú og hálft ár og að hann ynni sem málari hjá Reykjavíkurborg. Hann byggi með meðákærða Valmir. Varðandi aðkomu sína að málinu vildi hann sem minnst segja þar sem hann væri aðeins fórnarlamb í málinu. Hann hefði verið notaður af manni sem hann hefði verið í samskiptum við í um ár fyrir handtökuna. Maðurinn hefði oft sagt honum sögur af fíkniefnainnflutningi og af og til sendi hann frændfólk sitt eða vini hingað til lands til þess að taka á móti sendingum. Þá hringdi maðurinn stundum í hann og bæði hann um að aðstoða fólkið, til að mynda með því að lána því pening fyrir mat. Hann hefði haldið að hann væri að fara að aðstoða mann, sem væri hér á landi í ólöglegri dvöl, með því að hleypa honum inn í iðnaðarbil sem hann hafði umráð yfir. Þess í stað hefði Sandra Dorothea mætt með bíl fullan af fíkniefnum. Valmir millifærði fleiri milljónir Meðal þess sem til umræðu var við aðalmeðferðina voru millifærslur umtalsverðra fjármuna en í ákæru á hendur Valmir segir að hann hafi komið að innflutningi og fjármögnun fíkniefna, fyrst með því að greiða samtals 29.968 evrur, um 4,3 milljónir króna, í gegnum reikning sinn hjá fjármálafyrirtækinu Revolut á óþekktan mann í júní 2025, en fjármunirnir hafi verið endurgreiddir inn á sama reikning hans hjá Revolut nokkrum dögum síðar. Stuttu síðar hafi hann greitt 40.036 evrur, um 5,7 milljónir króna, í gegnum reikning sinn hjá Revolut inn á eigin bankareikning í albanska bankanum Union bank. Þá hafi hann flett upp ferðaleið frá Egilsstöðum til Hafnarfjarðar í smáforritinu Google Maps fimmtudaginn daginn eftir að Sandra kom til landsins og upplýsingarnar hafi borist henni í gegnum óþekkan mann. Loks hafi hann komið í iðnaðarbilið þar sem ákærðu Sokol og Sandra voru við bifreiðina með fíkniefnunum og skömmu síðar náð í kassa í bifreið sína sem innihélt iðnaðarryksugu og sett hana við bifreiðina með fíkniefnunum og setið áfram í bifreið sinni fyrir utan húsið á meðan ákærðu Sokol og Sandra hófu að fjarlægja fikniefnin úr bifreiðinni og gert Sokol viðvart þegar lögregla kom á vettvang.
Fíkniefnabrot Dómsmál Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira