Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2026 18:55 Kjósendur í Virginíu samþykktu ný kjördæmi Demókrata með tiltölulega litlum meirihluta. 51,5 prósent kjósenda sögðu já en 48,6 prósent sögðu nei. AP/Julia Demaree Nikhinson Kjósendur í Virginíu í Bandaríkjunum samþykktu í gær ný kjördæmi í ríkinu sem teiknuð voru upp af Demókrötum og gæti fjölgað þingsætum þeirra þar um fjögur. Það yrði á kostnað repúblikana en hæstiréttur ríkisins á þó eftir að úrskurða um hvort nýju kjördæmin séu lögleg eða ekki.
Reynist breytingarnar löglegar er útlit fyrir að Demókratar fari fram úr Repúblikönum í kjördæmastríðinu vestanhafs, samkvæmt AP fréttaveitunni. Því bjuggust fáir við þegar Donald Trump og Repúblikanar í Texas gerðu umfangsmiklar breytingar á kjördæmum þar síðasta sumar vegna ótta um að hljóta afhroð í næstu kosningum. Trump tjáði sig í dag um atkvæðagreiðsluna og heldur hann því fram að svindl hafi ráðið úrslitum. Forsetinn hefur ítrekað logið því að í kosningum sem fara honum ekki í vil hafi andstæðingar hans svindlað. Í færslu á Truth Social kvartar Trump einnig yfir því að spurningin á kjörseðlinum hafi verið óljóst orðuð og það hafi verið gert vísvitandi. Hann, sem einstakur snillingur, hafi ekki einu sinni skilið orðalagið. „Eins og allir vita er er ég einstaklega gáfaður maður, og meira að segja ég hafði ekki hugmynd um hvurn fjandann þeir voru að tala um í þessari atkvæðagreiðslu, og það vita þeir ekki heldur!“ Þá segist Trump vonast til þess að dómstólar muni grípa inn í og stöðva kjördæmabreytingarnar. Færsla Trumps á Truth Social. Repúblikanar gætu farið aftur fram úr Demókrötum þar sem ríkisþingmenn í Flórída stefna að því að opinbera ný kjördæmi í því ríki í næstu viku. Sjá einnig: Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Við venjulegar kringumstæður er kjördæmum breytt á um tíu ára fresti, í kjölfar reglulegs manntals í Bandaríkjunum. Þá er 435 þingsætum í fulltrúadeildinni deilt á ríki í hlutfalli við íbúafjölda. Það að breyta kjördæmum með þessum hætti, í þágu annars flokksins í Bandaríkjunum, kallast „Gerrymandering“ á ensku. Í einföldu máli sagt er þetta gert með því að þjappa mörgum kjósendum eins flokks í fá kjördæmi og þynna út atkvæði annarra. Þetta hefur lengi verið stundað í Bandaríkjunum og þess vegna eru í raun tiltölulega fá þingsæti þar í landi sem raunverulega er barist um í kosningum. Repúblikanar víða um Bandaríkin hófu í fyrra, að áeggjan Trumps, að breyta kjördæmum í ríkjum þar sem þeir eru við stjórnvölinn með því markmiði að bæta stöðu þeirra fyrir þingkosningarnar í nóvember. Við það hófst ákveðið kjördæmastríð. Hingað til hafa Repúblikanar teiknað ný kjördæmi í Texas, Missouri, Norður-Karólínu og Ohio. Demókratar hafa gert sambærilegar breytingar í Kaliforníu, Utah og Virginíu. Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði fyrr á árinu að taka fyrir mál sem Repúblikanar og ríkisstjórn Trumps hafði höfðað gegn Kaliforníu vegna breytinganna þar en þær voru samþykktar af miklum meirihluta kjósenda. Ætla í átak fyrir kosningarnar Repúblikanar og Trump hafa miklar áhyggjur af því að Demókratar muni ná meirihluta í fulltrúadeildinni í kosningunum í nóvember. Minni líkur eru taldar á því að þeir muni einnig ná meirihluta í öldungadeildinni. Það að hafa meirihluta í fulltrúadeildinni yrði þó mikill sigur fyrir Demókrata sem gætu beitt þinginu til að reyna að koma einhverjum böndum á Trump. Meðal annars gætu þeir rannsakað störf forsetans og meðlima ríkisstjórnar hans, krafist ýmissa gagna og jafnvel ákært hann fyrir embættisbrot í þriðja sinn. Nái Demókratar einnig meirihluta í fulltrúadeildinni gætu þeir komið í veg fyrir að Trump geti skipað fólk í ýmis embætti á seinni helmingi kjörtímabilsins. Í frétt Politico er haft eftir mönnum úr Repúblikanaflokknum að þeir búist við því að Trump muni fara á flakk um Bandaríkin og reyna að stappa stálinu í kjósendur flokksins og styrkja stöðu hans fyrir kosningarnar. Starfsmenn Trumps og ráðgjafar hafa einnig á undanförnum vikum fundað með marga af stuðningsmönnum Trumps sem eru óánægðir með hann og ríkisstjórnina. Margir slíkir hafa lýst yfir sérstakri óánægju með stríðið gegn Íran. CNN segir að ráðgjafar Trumps ætli sér að reyna að sannfæra kjósendur um það að þó þeir séu óánægðir með stöðuna eins og hún er í dag, muni hún versna til muna nái Demókratar tökum á þinginu í nóvember. Áætlun þessi byggir á könnunum sem Repúblikanar hafa látið gera og eru sagðar sýna að kjósendur treysti flokknum betur en Demókratar þegar kemur að ýmsum lykil-málaflokkum.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Mest lesið Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Innlent Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Sjá meira