Byggjum það sem fólkið vill Hildur Björnsdóttir skrifar 5. maí 2026 08:17 Níu af hverjum tíu landsmönnum vilja helst af öllu búa í eigin húsnæði samkvæmt nýlegri könnun Húsnæðis og mannvirkjastofnunar (HMS). Stefna borgaryfirvalda þarf að endurspegla þessa staðreynd. Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélag landsins og því í lykilstöðu þegar kemur að húsnæðisuppbyggingu í landinu. Verkefni okkar sem bjóðum okkur fram til forystu er að svara kallinu og sjá til þess að framboð af húsnæði endurspegli vilja borgarbúa. Sá vilji er skýr - Reykvíkingar vilja flestir búa í eigin húsnæði. Þetta höfum við sjálfstæðismenn lengi vitað enda séreignastefnan hornsteinninn í húsnæðisstefnu okkar. Hver bað um það? Miðað við núverandi áætlanir munu um 45% nýrra íbúða í Reykjavík fara í niðurgreidd húsnæðisúrræði utan almenns markaðar á næstu árum samkvæmt úttekt Viðskiptaráðs. Stefnan felur í sér ógagnsæja meðgjöf til húsnæðisfélaga og framboð á skjön við þarfir íbúa. Þessar áherslur endurspegla auðvitað ekki vilja Reykvíkinga – sem flestir vilja eiga sína fasteign. Samhliða hafa borgaryfirvöld lagt íþyngjandi kvaðir á hinn almenna markað – tóm verslunarrými á fyrstu hæðum, íbúðir seldar Félagsbústöðum á undirverði og tafir sem auka fjármagnskostnað verulega. Þá er ótalin sú skipulagða lóðaskortsstefna sem rekin hefur verið um áratugaskeið í Reykjavík. Umhverfi húsnæðisuppbyggingar í Reykjavík er beinlínis til þess fallið að skipuleggja húsnæðisskort og hækka húsnæðisverð. Undanfarin ár hefur uppbygging í Reykjavík snúist um svokallaða ofurþéttingu. Ný svæði eru skipulögð ofan í eldri hverfum. Byggð eru há fjölbýlishús allstaðar að því er virðist eftir sömu eða svipaðri uppskrift. En aftur er verið að gera borgarbúum upp skoðanir. Samkvæmt könnun HMS vilja nefnilega einungis 6% landsmanna búa í fjölbýlishúsum og aðeins tíundi hver vill búa í fimm hæða húsi eða hærra. Í sömu könnun var spurt að því hvað skipti fólk máli við val á húsnæði, og sagðist ríflega helmingur vilja gott dagsljós og sambærilegur fjöldi næg bílastæði. Þessi atriði hafa þó mætt afgangi í Reykjavík Samfylkingarinnar. Mun færri nefndu tengingar við almenningssamgöngur sem þó hafa verið ríkjandi öflum í Reykjavík mjög hugleikin. Reykjavíkurborg hefur því um árabil lagt alla áherslu á uppbyggingu húsnæðis sem ekki nýtur almennrar lýðhylli. Verið er að móta borgina eftir því hvernig stjórnmálamönnum finnst hún eigi að vera, en ekki í samræmi við vilja íbúanna. Reykvíkingar virðast vilja hóflega þéttingu, en hafna þeirri ofurþéttingu sem leitt hefur af sér skort og dýrtíð á almennum fasteignamarkaði. Séreignarstefnan er leiðarljós Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja láta af óhóflegri þéttingarstefnu. Við þurfum að breyta skipulagi nýrra hverfa í Keldnalandi og Úlfarsárdal þannig að þau mæti þeim kröfum sem borgarbúar gera í raun. Við viljum afnema hámarksfjölda bílastæða, og hefja uppbyggingu íbúðahverfa í Geldinganesi og á landfyllingum úti á Granda. Nýjum lóðum á að úthluta í Gufunesi, Kjalarnesi og víðar. Við þurfum að afnema íþyngjandi skilyrði borgarinnar um hlutfall niðurgreiddra húsnæðisúrræða í nýbyggingum, og koma í veg fyrir tafatíma við afgreiðslu mála í borgarkerfinu. Hvort tveggja veldur óþarfa hækkun byggingarkostnaðar sem skilar sér í hærra íbúðaverði á markaði. Séreignarstefnan á að vera okkur leiðarljós í endurreisn húsnæðismarkaðarins í Reykjavík. Sköpum umhverfi þar sem markaðurinn getur byggt það sem fólkið vill - og gerum fólki kleift að eignast eigið húsnæði. Höfundur er borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Hildur Björnsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar