44 hringir ekki nóg fyrir sigurvegarann: „Hefði viljað reyna við brautarmetið“ Valur Páll Eiríksson skrifar 11. maí 2026 06:49 Sigurvegarinn Þórdís ræðir málin við Tinnu Miljevic í morgunsárið. Vísir/Viktor Freyr Þórdís Ólöf Jónsdóttir sigraði Bakgarðshlaupið sem fór fram í Öskjuhlíð um helgina. Hún fór 44 hringi sem gera 294,8 kílómetra. Hún hefði viljað hlaupa lengra.
210 hlupu af stað klukkan níu á laugardagsmorgun og lauk keppninni rétt fyrir klukkan fimm á mánudagsmorgun. Í öðru sæti var Guðmundur Lúther Hallgrímsson sem fór af stað í 44. hringinn en sneri við. „Ég hefði viljað halda áfram,“ segir Þórdís í samtali við Tinnu Miljevic í útsendingu Vísis frá Öskjuhlíð í morgunsárið. Hún kom í mark rétt fyrir klukkan fimm í morgun hafandi hlaupið sleitulaust frá því klukkan níu á laugardagsmorgun. Segja má að ekki hafi verið sjáanlegt á Ólöfu að hún hafi verið á hlaupum í tæpa tvo sólarhringa. Hún hljóp í 44 klukkustundir og fór á þeim 294,8 kílómetra. Bakgarðshlaupið stendur þar til einn stendur uppi sem sigurvegari en þar sem aðrir höfðu helst úr lestinni, síðast áðurnefndur Guðmundur Lúther, gat Þórdís ekki haldið áfram þar sem hún stóð ein eftir. „Ég hefði viljað reyna við brautarmetið,“ segir Þórdís. Það met er 57 hringir, og hefði þýtt 13 klukkustundir í viðbót á hlaupum – til klukkan 18:00 síðdegis í dag. Fyrst og fremst er Þórdís þó glöð og fegin að fagna sigri. „Loksins. Ég er búin að vera á palli þrisvar í röð og aldrei unnið,“ segir Þórdís Ólöf. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Bakgarðshlaup Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Fleiri fréttir Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Sjá meira