Bíða með breytingar eftir liðsskipti Helga Áss fram yfir kosningar Kjartan Kjartansson skrifar 11. maí 2026 13:45 Sjálfstæðismenn lögðu fram breytingar á samþykktum borgarstjórnar eftir að Helgi Áss Grétarsson sagði sig úr flokknum en hélt áfram að innheimta launagreiðslur ætlaðar fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir segir að tillögurnar verði lagðar aftur fram eftir kosningar. Vísir Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa dregið til baka tillögur um greiðslur til varaborgarfulltrúa sem þeir lögðu fram eftir að fyrsti borgarfulltrúi þeirra sagði skilið við þá í vetur. Fulltrúi þeirra segir tillögurnar lagðar fram eftir kosningar þegar nýr meirihluti verður kominn með umboð.
Helgi Áss Grétarsson fær ennþá greitt fyrir að vera fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir að hann hafi sagt skilið við hann og gengið til liðs við Miðflokkinn í janúar. Ástæðan er sú aðeins sá sem er kjörinn fyrsti varaborgarfulltrúi flokks fær ákveðna fasta greiðslu á mánuði samkvæmt samþykktum borgarstjórnar. Fyrstu varaborgarfulltrúar fá greitt sérstaklega þar sem gert er ráð fyrir að þeir sinni ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokka sína. Sjálfstæðismenn skiptu Helga Áss út úr nefndum og ráðum í kjölfarið en hann hefur setið nokkra borgarstjórnarfundi í fjarveru borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins eftir vistarskiptin. Sjálfstæðismenn lögðu fram tillögur að nokkrum breytingum á samþykktum um stjórn Reykjavíkurborgar sem hefði gert þeim kleift að ákveða hvaða varafulltrúi þeirra fengi greidd föst laun. Venja að taka ekki stórar ákvarðanir rétt fyrir kosningar Tillögurnar voru lagðar fyrir forsætisnefnd borgarinnar eftir umsagnarferli innan borgarkerfisins á föstudag. Ragnhildur Alda María Vilhjálmdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, dró tillögurnar til baka á sama fundi. Í samtali við Vísi segir hún að meirihlutinn hafi ekki viljað afgreiða tillögurnar í vetur og ýtt málinu á undan sér. Tillögurnar hafi fyrst nú komið aftur til umræðu eftir meðferð í borgarkerfinu. Of seint hafi verið að afgreiða þær nú þegar styttist í síðasta fund borgarstjórnar á kjörtímabilinu. „Vinnubrögðin eiga að vera þannig að þegar stutt er í kosningar og fólk svo gott sem umboðslaust að ekki séu teknar stórar stefnumarkandi ákvarðanir,“ segir Ragnhildur Alda. Því verði tillögurnar lagðar fram aftur eftir kosningar þegar nýr meirihluti með ríkt umboð verði tekinn við.
Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira