Ekið á tvö börn hvort í sínu sveitarfélaginu í dag Freyja Þórisdóttir skrifar 11. maí 2026 19:22 Einn sjúkrabíll er á vettvangi. Vísir/Vilhelm Keyrt var á tólf ára barn sem var við leik við Ægisgötu upp úr klukkan tólf í dag. Barnið hlaut áverka á fæti en var barnið flutt undir læknishendur í kjölfar slyssins. Þá var fjórtán ára stúlka flutt á bráðamóttökuna eftir að ekið var á hana í Hafnarfirði.
Þetta staðfestir lögregla í samtali við blaðamann en Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir slysið í Reykjavík hafa orðið rétt eftir hádegi. „Það var ekið þarna á barn sem var við leik við götuna, mér skilst að það hafi slasast á fæti,“ segir hann en greinir frá því að áverkarnir hafi ekki virkað mjög alvarlegir. Í dag var einnig tilkynnt um aðila sem höfðu komið sér upp litlu tjaldi í Hljómskálagarði en þeim var gert að taka það niður og flytja sig úr garðinum. „Þau voru þarna búin að koma sér upp litlu tjaldi og koma sér fyrir, þeim var svo gert að taka það niður. Engin mótmæli og ekki neitt,“ segir Ásmundur um málið. Stúlkan flutt beint á bráðamóttökuna Skúli Jónsson, stöðvarstjóri á Lögreglustöð tvö sem sinnir verkefnum í Garðabæ og Hafnarfirði, greinir blaðamanni frá slysi sem varð rétt fyrir klukkan þrjú í dag, mánudaginn 11. maí. „Það varð slys þarna á Reykjavíkurvegi, norðan við Hraunbrún, og kom tilkynning um það rétt fyrir klukkan þrjú en þá voru bæði lögregla og sjúkraliðar flutt á vettvang,“ segir Skúli en ekið var á fjórtán ára gamla stúlku og hlaut hún áverka á höfði. „Hún var illa áttuð og hlaut áverka á höfði en ástand hennar er stöðugt núna og hún er vakandi,“ segir Skúli og tjáir blaðamanni að málið sé enn í rannsókn.
Lögreglumál Reykjavík Hafnarfjörður Samgönguslys Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira