Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. maí 2026 12:36 Tinna Sigrún Pétursdóttir er markaðsstjóri S4S. Ný Lindex verslun opnar í Kringlunni á morgun en öllum Lindex verslunum landsins var lokað þegar fyrri rekstraraðili hætti með umboðið, sem fór til S4S. Nýja verslunin verður opnuð í plássinu þar sem Next var áður, við hlið H&M.
Verslunin verður meðal stærstu Lindex verslana Evrópu, samtals um 955 fermetrar að stærð. Þá verður þetta fyrsta verslunin til að opna sem er hönnuð útfrá nýju verslanaútliti Lindex. Viðskiptavinir Lindex hafa getað verslað vörur frá fyrirtækinu á lindex.is en í kjölfarið af opnun verslunar í Kringlunni er stefnt á að opna verslun í Smáralind fyrir lok mánaðarins og á Akureyri síðar á árinu. „Við erum gríðarlega spennt að geta loksins tekið á móti viðskiptavinum í eina stærstu og glæsilegustu Lindex verslun Evrópu. Það hefur verið magnað að fylgjast með öllu teyminu vinna hörðum höndum, dag og nótt, til að undirbúa verslunina fyrir opnun. Við höfum fundið hversu vænt fólki þykir um Lindex vörumerkið og það gleður okkur mikið að geta boðið viðskiptavini velkomna inn í verslun Lindex á Íslandi á nýjan leik,“ er haft eftir Tinnu Sigrúnu Pétursdóttur, markaðsstjóra S4S, í tilkynningu. Meðlimum Lindex-klúbbsins og gestum og gangandi í Kringlunni gefst kostur á að taka forskot á sæluna á sérstakri foropnun klukkan 16 í dag en blásið verður til formlegrar opnunarhátíðar milli klukkan 14 og 16 á morgun. Þar verður kaffibar og léttar veitingar í boði, auk glaðninga fyrir börnin.
Verslun Neytendur Tíska og hönnun Kringlan Reykjavík Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira