McGregor snýr aftur í búrið og berst við Holloway í júlí Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. maí 2026 09:35 Conor McGregor er einn besti bardagamaður í sögu UFC en hefur ekki unnið bardaga síðan í janúar 2020. Jeff Bottari/Zuffa LLC Conor McGregor mun snúa aftur í UFC bardagabúrið þann 11. júlí næstkomandi í Las Vegas í Bandaríkjunum og berjast við Max Holloway í veltivigtinni.
Ekki er um titilbardaga að ræða þó þeir séu báðir fyrrum UFC meistarar. Þeir hafa einu sinni mæst áður, snemma á ferlinum. McGregor vann bardagann, sem var aðeins annar bardaginn á UFC ferli hans, í júlí 2013, á dómaraákvörðun. McGregor hefur ekki barist síðan þann 10. júlí 2021 þegar hann fótbrotnaði í tapi gegn Dustin Poirier. Hann snýr því aftur í hringinn akkúrat einum degi frá því að fimm ár verða liðin frá síðasta bardaga. I’m gonna son you, child. Again. https://t.co/75YlXXl5SH— Conor McGregor (@TheNotoriousMMA) May 17, 2026 Síðast þegar McGregor var með skipulagðan bardaga, gegn Michael Chandler í júní 2024, dró hann sig úr keppni vegna meiðsla í tánni. Hann hefur glímt við ýmis vandamál í einkalífinu frá því þá og komist í kast við lögin margoft. Í nóvember 2024 var hann sakfelldur fyrir kynferðisofbeldi sem átti sér stað árið 2018. McGregor var á sínum tíma fyrstur til að halda á meistarabelti í tveimur þyngdarflokkum í UFC samtímis, árið 2016. Hann mundaði svo hnefaleikahanskana árið 2017 gegn Floyd Mayweather og hefur aðeins barist fjórum sinnum í UFC síðan, og tapað þrisvar. Holloway er fyrrum fjaðurvigtarmeistari en hefur tekið tvo bardaga í léttvigtinni, unnið einn og tapað einum. Sama kvöld, þann 11. júlí, mun Paddy Pimblett snúa aftur í hringinn eftir að hafa tapað í fyrsta sinn á ferlinum í janúar og berjast við Benoit Saint Denis.
MMA Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Fleiri fréttir Rooney vill að Mainoo byrji hjá Englandi frekar en Anderson Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Maður dagsins á HM: Hetja Mexíkó á HM sem fæddist í Kólumbíu Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Sjokkið breyttist í ævintýri Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Draumur Bergrósar að rætast: „Óraunverulegt“ Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Dagskráin í dag: Stuð í snókernum Ólýsanleg sorg fyrirliðans Verður áfram í Þýskalandi Koeman hættir með Holland Heimsmeistari hleypur Laugaveginn Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Ja Morant skipt til Trail Blazers Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska LeBron James yfirgefur Lakers Sjá meira