Hækka stýrivexti aftur Árni Sæberg skrifar 20. maí 2026 08:30 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. Vísir/Vilhelm Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,50 prósentum í 7,75. Stýrivextir voru hækkaðir í fyrsta sinn um langt skeið þann 18. mars síðastliðinn þegar þeir voru færðir upp í 7,5 prósent. Þá var verðbólga 5,2 prósent, sú sama og í dag. Flestir greiningaraðilar höfðu spáð 25 punkta hækkun.
Greint er frá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í yfirlýsingu sem birt var klukkan 8:30. Hún hljóðar svo: „Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,75%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mælist nú 5,2%. Verðbólguvæntingar hafa hækkað, einkum til skamms tíma. Hækkun þeirra frá því að stríðsátök hófust í Mið-Austurlöndum er þó ekki eins mikil og í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu fyrir fjórum árum. Þar vegur þungt að spennan í þjóðarbúinu var töluvert meiri þá. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans eru horfur á minni hagvexti og meira atvinnuleysi en spáð var í febrúar. Mikil hækkun olíu- og hrávöruverðs og viðvarandi innlendur verðbólguþrýstingur hafa á sama tíma leitt til þess að verðbólguhorfur hafa einnig versnað. Efnahagsaðstæður gætu þróast til verri vegar ef truflanir á alþjóðlegum olíumarkaði vara lengur en nú er gert ráð fyrir eða ef kjarasamningum verður sagt upp síðar á árinu. Í ljósi verri verðbólguhorfa og hárra verðbólguvæntinga telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans. Nefndin er jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum. Mótun peningastefnunnar mun þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“ Flestir greiningaraðilar sammála um 25 punkta Eftir að stýrivextir voru síðast hækkaðir fór verðbólga upp í 5,4 prósent í marsmælingu Hagstofunnar og þá bjuggust flestir við því að vextir yrðu hækkaðir á ný í dag. Í aprílmælingunni fór verðbólga aftur niður í 5,2 prósent en það breytti ekki spám greiningaraðila, sem gerðu langflestir ráð fyrir 0,25 prósentustiga hækkun. Aðalhagfræðingur Landsbankans sagði til að mynda í kvöldfréttum Sýnar í gær að búast mætti við 25 punkta hækkun. Forsvarsmenn Seðlabankans hefðu gefið skýrt til kynna við síðustu ákvörðun að herða þyrfti taumhaldið. Það þyrfti að gera þó það gæti kælt hagkerfið. Þá sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, við fréttastofu í gærmorgun að vaxtahækkun myndi ekki koma honum á óvart. Vefútsending klukkan 9:30: Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar fer fram klukkan 9:30 en þar munu þeir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og sitja fyrir svörum. Þá mun Karen Áslaug Vignisdóttur, aðalhagfræðingur bankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, kynna efni Peningamála, sem koma út í dag.
Seðlabankinn Efnahagsmál Íslenska krónan Verðlag Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira