Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 22. maí 2026 13:05 Samkvæmt upplýsingum frá Hilmari Gunnarssyni oddvita Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ er von á tíðindum varðandi meirihlutaviðræður í dag. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins hittir oddvita Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins í dag. Vísir Von er á tíðindum frá Mosfellsbæ í dag varðandi meirihlutaviðræður í næstu bæjarstjórn samkvæmt oddvita Sjálfstæðisflokksins sem vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks í borginni hittir oddvita Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig einum manni í Mosfellsbæ í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum og er nú með fimm menn kjörna en alls eiga ellefu bæjarfulltrúar sæti í bæjarstjórn. Það nægir því flokknum að fá einn annan flokk með sér til að mynda meirihluta í bænum. Samkvæmt upplýsingum frá Hilmari Gunnarssyni oddvita Sjálfstæðisflokksins í morgun er von á tíðindum varðandi meirihlutaviðræður í dag. Síðasti meirihluti í bænum kolféll í kosningunum eða meirihluti Framsóknarflokks, Samfylkingar og Viðreisnar Mögulega meiri líkur á samstarfi við Viðreisn og Framsóknarflokkinn Ekki er ljóst hvort Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík muni tilkynna um meirihlutaviðræður í dag. Hún hitti nýkjörna borgarfulltrúa sína á fundi í gær til að fara yfir stöðu mála. Hildur hefur í vikunni rætt við oddvita Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknar um mögulegt meirihlutasamstarf. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu ræðir hún við oddvitana aftur í dag. Ýmsar vangaveltur eru uppi um hvernig meirihlutinn muni líta út. Spekingar sem fréttastofa hefur rætt við í dag telja að meiri líkur séu á Hildur tilkynni um meirihlutaviðræður við Framsókn og Viðreisn en Miðflokkinn. Hún þekki Björgu Magnúsdóttur frá gamalli tíð þegar þær voru samtíða í Versló og svo í stúdentapólitík og sem aðstoðarmann Einars Þorsteinssonar þegar hann var borgarstjóri. Þá sé greinilegt að vel fari á með Einari og Hildi. Mögulega lengra á milli við Miðflokk Mögulega sé lengra milli leikenda í Miðflokknum. Meðal þess sem hafi áhrif sé að stór hluti núverandi borgarstjórnarflokks Miðflokksins hafi hætt í Sjálfstæðisflokknum síðustu mánuði meðal annars vegna óánægju með áherslur Sjálfstæðisflokksins. Meðal þeirra eru Helgi Áss Grétarsson fyrrverandi varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem verður nú varaborgarfulltrúi Miðflokksins. Þá hafi Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar ákveðið að fara til Miðflokksins í mars að sögn vegna óánægju með áherslur Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þá er vísað til bæklings Miðflokksins í Reykjavík sem hafi verið dreift fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þar sem m.a. komi fram að Miðflokkurinn segi nei við borgarlínuskatti og þar að leiðandi borgarlínu. Bent er á í bæklingnum að Sjálfstæðisflokkurinn styðji hins vegar borgarlínu ásamt Vinstri. Þá kemur fram að Miðflokkurinn vilji hverfa frá stefnu borgarinnar um að fækka bílastæðum. Bent er á að vinstri flokkarnir hafi samþykkt það árið 2021 með stuðningi núverandi oddvita Sjálfstæðisflokksins eins og segir í bæklingnum. Bæklingur Miðflokksins í Reykjavík fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Vísir
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mosfellsbær Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira