Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. maí 2026 13:48 Formleg hlutverkaskipti þjálfaranna urðu á blaðamannafundi FH. VÍSIR Aron Pálmarsson verður aðalþjálfari karlaliðs FH í handbolta en Sigursteinn Arndal verður aðstoðarþjálfari.
Þessar breytingar tilkynnti FH á blaðamannafundi í Kaplakrika í hádeginu. Þar var einnig nýr styrktaraðili handknattleiksdeildar FH kynntur. SPAR verður framan á treyjum FH á næsta tímabili. Sigursteinn Arndal hefur verið aðalþjálfari FH frá árinu 2019 og stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils árið 2024. Sigursteinn Arndal verður aðstoðarþjálfari FH. vísir / anton Þá var Aron leikmaður liðsins en skór hans fóru á hilluna vorið 2025. Síðasta haust sagðist Aron ekki hafa áhuga á þjálfun en sú skoðun hefur augljóslega breyst. Nánar verður rætt við nýjan aðstoðarþjálfara FH í Sportpakka Sýnar. Byrjaði sem aðstoðarþjálfari í febrúar Aron kom inn í þjálfarateymi FH í febrúar síðastliðnum og tók að sér að stýra sóknarleik liðsins. Áður var hann sérstakur ráðgjafi handknattleiksdeildar félagsins. Það er staða sem hann tók við sumarið 2025. Aron Pálmarsson verður aðalþjálfari FH. vísir / anton Hann var áberandi í úrslitakeppninni þar sem hann stýrði flestum leikhléum liðsins og stillti sóknarleikinn af. FH tapaði fyrir Val í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. FH varð í 2. sæti Olís deildar karla 2026 eftir tap gegn Val í úrslitaeinvíginu. vísir / anton Lauk leikmannaferlinum í fyrra Aron lauk ferli sínum sem leikmaður árið 2025 hjá Veszprem í Ungverjalandi eftir að hafa komið heim í FH og unnið Íslandsmeistaratitilinn vorið 2024. Hann er einn allra besti handboltamaður sögunnar og raðaði inn titlum með Kiel, Barcelona, Veszprem og Álaborg í Danmörku. Á ferlinum vann Aron þýsku úrvalsdeildina fimm sinnum, þá spænsku fjórum sinnum og þá ungversku tvisvar. Þá vann hann Meistaradeild Evrópu þrisvar, einu sinni með Barcelona og tvisvar með Kiel. Aron skoraði 576 mörk í 148 landsleikjum fyrir Ísland og vann með liðinu brons á EM 2010.
Olís-deild karla FH Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira