Viðskipti innlent

Yrði fjórði stærsti líf­eyris­sjóðurinn

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Gunnar Baldvinsson er framkvæmdastjóra Almenna-Lífsverks.
Gunnar Baldvinsson er framkvæmdastjóra Almenna-Lífsverks. Innsent.

Stjórnir SL og Almenna – Lífsverks hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Sjóðurinn yrði sá fjórði stærsti á Íslandi með eignir upp á rúma þúsund milljarða króna.

Viðræður eru á frumstigi en stefnt er að því að þeim verði lokið fyrir mitt sumar. Verði af sameiningunni gengur hún í gegn 1. janúar 2027.

Samkvæmt tilkynningu yrði markmið viðræðnanna að kanna hvort sameinaður lífeyrissjóður myndi skapa sterkari grunn fyrir hagstæð og trygg lífeyrisréttindi beggja. Þá standa vonir til að hægt verði að veita bætta þjónustu við sjóðfélaga og að samlegðaráhrif leiði til hagræðingar í rekstri.

Tillögur um sameiningu eru háðar samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sjóðfélaga og stjórna sjóðanna.

Stærstu lífeyrissjóðir landsins í eignum talið, eftir stærðarröð, eru Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verslunarmanna og Gildi-lífeyrissjóður.

Fyrr í mánuðinum var tilkynnt að ekkert yrði af fyrirhugaðri sameiningu Lífeyrissjóðs Verslunarmanna og Birtu Lífeyrissjóðs. Könnunarviðræður höfðu þá staðið yfir frá því í janúar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×