Handbolti

Tárvotur Bjarki fékk hjart­næma kveðju­stund

Aron Guðmundsson skrifar
Bjarki Már horfir hér á kveðjumyndband með dóttur sinni.
Bjarki Már horfir hér á kveðjumyndband með dóttur sinni. Mynd: Vezprém

Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Bjarki Már Elísson, var kvaddur á fallegan hátt af ungverska stórliðinu Vezprém í síðasta heimaleik liðsins á tímabilinu í gær. Bjarki Már hefur brátt nýjan kafla á sínum ferli en óvíst er hvar hann mun spila handbolta næst.

Vezprém vann tveggja marka sigur á Pick Szeged í fyrsta leik liðsins í úrslitaeinvígi ungversku deildarinnar í gær en eftir leik nýttu forráðamenn tækifærið í því sem var síðasti heimaleikur liðsins til þess að kveðja þá leikmenn sem eru á förum frá félaginu eftir tímabilið. 

Bjarki Már er einn þeirra leikmanna en hann hefur heldur betur sett sitt mark á lið Vezprém frá því að hann gekk í raðir liðsins frá Lemgo árið 2022. Í þrígang hefur hann orðið ungverskur meistari með liðinu og gæti fjórði meistaratitilinn bæst við áður en tímabilinu lýkur. Þá hefur hann einnig í þrígang orðið bikarmeistari með Vezprém. 

Eftir leikinn í gær var hjartnæmt kveðjumyndband fyrir Bjarka Má sýnt á risaskjá á heimavelli Vezprém. Bjarki Már horfði á myndbandið ásamt dóttur sinni og varð auðsjáanlega fyrir tilfinningalegum áhrifum með því að horfa á það. 

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan: 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×