Rauður dagur í Kauphöllinni Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. júní 2026 16:56 Óvissa í íslensku efnahagslífi eykst hratt. Vísir Kauphöllin var lengst af glóandi rauð í dag. Örfá fyrirtæki náðu þó að snúa vörn í sókn síðustu klukkustundina af opnun hennar og enduðu í grænu. Mest var hækkun Haga upp á 0,81% en viðskipti með bréf félagsins námu sextíu og þremur milljónum. Mesta lækkunin varð á bréfum Alvotech, um 4,76%, í viðskiptum upp á tæpar nítíu og fimm milljónir.
Óvissa hefur verið þema í umfjöllun Vísis um efnahagsmál síðustu daga. Nú síðast í morgun lýsti fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans yfir viðvarandi óvissu í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfum og að háir vextir muni reyna á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Þá fari húsnæðisverð lækkandi að raunvirði á sama tíma og íbúðum á sölu haldi áfram að fjölga. Það er íslenska lyftæknifyrirtækið Oculis sem hefur leitt lækkanir á markaðnum síðustu daga. Slæmar fréttir bárust af lyfjaþróun fyrirtækisins í lok síðustu viku sem leiddu til hruns í markaðsvirði félagsins. Félagið hafði við lokun Kauphallarinnar lækkað um 57%. Viðskiptablaðið greinir þó frá því að gengi félagsins hafi hækkað við opnun markaða vestanhafs, en félagið er einnig skráð í Bandaríkjunum. Meðal fyrirtækja sem lækkuðu mest í dag eru fjarskiptafyrirtækin Nova Klúbburinn, um 2,23%, og Sýn, um 2,8%. Þá lækkað Icelandair um 2,62% en félagið stígur þessa dagana krappan dans þar sem olíuverð fer hækkandi og niðurfellingar brottfara tíðar vegna vélaskorts og flugmannaskorts. Mest viðskipti voru með bréf Íslandsbanka í dag upp á alls þrjú hundruð og sextíu milljónir. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar sem stóð í 2800 stigum fyrir viku síðan hefur lækkað um tæp tíu prósent í vendingum síðustu daga, niður í 2562 stig. Vísir er í eigu Sýnar hf.
Efnahagsmál Kauphöllin Oculis Tengdar fréttir Hundruðum sagt upp í maí Vinnumálastofnun bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí. Alls var 370 manns sagt upp störfum. 1. júní 2026 16:48 Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Flugmenn Air Atlanta hafa tvívegis fellt nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. Í samningnum sem felldur var síðast áttu launin að hækka samkvæmt kjarasamningsbundinni hækkun stöðugleikasamkomulags á almennum vinnumarkaði. Sú hækkun nemur um 3,5% á ári hverju yfir samningstímann. 2. júní 2026 11:13 Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Atvinnuleysi mælist 5,8% en var 3,3% á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi dregst saman milli mánaða en síðasta mæling Hagstofunnar var 6,3%. Atvinnuleysistölur eru birtar mánaðarlega. 30. maí 2026 11:41 Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Sjá meira
Hundruðum sagt upp í maí Vinnumálastofnun bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí. Alls var 370 manns sagt upp störfum. 1. júní 2026 16:48
Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Flugmenn Air Atlanta hafa tvívegis fellt nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. Í samningnum sem felldur var síðast áttu launin að hækka samkvæmt kjarasamningsbundinni hækkun stöðugleikasamkomulags á almennum vinnumarkaði. Sú hækkun nemur um 3,5% á ári hverju yfir samningstímann. 2. júní 2026 11:13
Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Atvinnuleysi mælist 5,8% en var 3,3% á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi dregst saman milli mánaða en síðasta mæling Hagstofunnar var 6,3%. Atvinnuleysistölur eru birtar mánaðarlega. 30. maí 2026 11:41