Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar 9. júní 2026 11:30 Þann 17. maí síðastliðinn ákvað Náttúruverndarstofnun Íslands að banna drónaflug á fjölmörgum stöðum á landinu nema fyrir kvikmyndaverkefni, rannsóknir, vaktanir og leyfisskylda viðburði og jú, fjölmiðla. Tilkynningunni fylgdi enginn rökstuðningur, bara að bannað sé að fljúga drónum. Þetta er mjög sérstök aðgerð og algjörlega án samtals við þau sem stunda drónaflug í atvinnuskyni. Milli tvær til þrjár milljónir ferðamanna heimsækja Ísland árlega og oft er það svo að samfélagsmiðlar eiga drjúgan þátt í að auglýsa landið, heilla og selja drauminn um að koma og upplifa. Drónamyndefni er án efa það efni sem mest sést á þessum samfélagsmiðlum og bak við það efni er fólk sem hefur sumt mikið fylgi á Instagram, Tiktok og Facebook. Nú hefur Náttúruverndarstofnun ákveðið, án nokkurra röksemda, í það minnsta opinberlega, að banna þessu fólki að fljúga drónum. Óopinberlega berast drónaflugmönnum hins vegar skilaboð frá starfsmönnum við eftirlit, oftast landvörðum, bæði fyrrverandi og núverandi, að aðalástæðan sé sú að Náttúruverndarstofnun nenni einfaldlega ekki að taka við umsóknum einyrkja og einstaklinga sem fljúga drónum vegna fjölda umsókna og þess vegna sé ákveðið að banna það bara. Enn fremur hefur stofnunin í samskiptum borið fyrir sig hávaðamengun af drónum, sem skerði upplifun ferðamanna, en í sömu viku var úthlutað leyfi til lendingar þyrlu við Jökulsárlón þar sem einhver efnaður ferðamaður vill borða hádegismat í tvær klukkustundir. Þetta hlýtur að vera hljóðlátasta þyrla sem sögur fara af því drónar mega ekki fljúga á sama stað, vegna hávaða og röskunar á upplifun ferðamanna. Það sem stingur undirritaðan er hins vegar sú staðreynd að flestöll sem stunda drónaflug á Íslandi að einhverju marki hafa tekið próf hjá Samgöngustofu, próf sem er samræmt evrópskt próf og gildir þess vegna innan ESB einnig. Sama fólk hefur skráð sig í gagnagrunn og dróna sína einnig. Prófin eru þrjú og eftir að hafa tekið þau ættu viðkomandi að hafa þekkingu og traust til að vinna sína vinnu og fara eftir reglum. Náttúruverndarstofnun tekur ekkert tillit til þessara prófa eða reynslu. Við sem tökum prófið erum flokkuð undir sama hatt og ferðalangur frá Boston sem keypti sér dróna áður en hann hoppaði upp í flug til Íslands. Þetta er ekki stjórnsýsla heldur miklu frekar samráðsleysi af hálfu opinberrar stofnunar. Samráðsleysi sem hefði auðveldlega mátt forðast með að taka einn, tvo fundi og ræða málin. Ég leyfi mér aðefast um að þau sem þessa ákvörðun tóku hjá Náttúruverndarstofnun hafi hugmynd um próf Samgöngustofu og fjöldan sem tekið hafa þessi próf. Síðustu tvö ár hefur undirritaður flogið drónum á Svalbarða, Jan Mayen, Grænlandi, heimskautasvæði Kanada, Falklandseyjum, Suður-Georgíu, Suðurskautslandinu, Argentínu, Brasilíu, Chile, Perú, Indónesíu, Spáni, Ítalíu, Filippseyjum og Japan. Allar reglur og reglugerðir hafa verið lesnar og yfirfarnar og þegar við á, drónar og próf skráð og sótt um leyfi, sem var oftast undantekningarmál frekar en venja. Í flestum þessum löndum er munur á reglum eftir því hvort um áhugafólk eða fagfólk sé að ræða og hvort fólk hafi tekið próf. Suðurskautið, einn verndaðasti staður heims bannar drónaflug ferðamanna en þeir sem starfa fyrir skipafyrirtæki sem þangað sigla geta tekið próf og flogið drónum. Undirritaður hefur tekið það próf og fannst það sjálfsagt og eðlilegt. Hér á Íslandi, þar sem drónar hafa fært heiminum fallega náttúru, verið hluti af uppvexti ferðaþjónustu og gríðarlega mikilvægir við að skrá eldsumbrot á Reykjanesi, er ákveðið að banna þá á stöðum sem hingað til hafa ekki verið vandamál. Það er bagalegt, illa ígrundað og bendir til þess að betra sé að banna allt frekar en að ræða saman og finna lausnir, öllum til hagsbóta. Lausnin er einföld. Þau sem tekið hafa próf hjá Samgöngustofu og ná þeim fá áfram fullt leyfi á svæðum eins og að Fjallabaki og fylgja reglum og reglugerðum. Hinir, t.d. gaurinn frá Boston sem ákvað að kaupa sér dróna áður en hann stökk upp á flugvöll og hélt af stað í miðnætursólinaþurfa einfaldlega fara eftir þessum reglum. Höfundur er drónaflugmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Steinbekk Kvikmyndagerð á Íslandi Ljósmyndun Mest lesið Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Skoðun Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar