Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Regalo 12. júní 2026 08:18 Á samfélagsmiðlum hefur hugtakið Gloss Hair eða „glanshár“ orðið eitt stærsta trendið í hárheiminum. Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari fjallar hér um hárvörur sem gefa glans. Það er fátt sem lætur hárið líta jafn heilbrigt, vel nært og vel hirt út og fallegur glans. Undanfarin ár höfum við séð mikla þróun í hárumhirðu þar sem áherslan hefur færst frá því að hárið sé einfaldlega mjúkt eða sterkt yfir í það að það endurkasti ljósi og hafi spegilslíkan gljáa. Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo fjallar hér um hárvörur sem auka glans.
Á samfélagsmiðlum hefur hugtakið Gloss Hair eða „glanshár“ orðið eitt stærsta trendið í hárheiminum. Þar snýst allt um slétt yfirborð hársins, mikinn glans og heilbrigðislegt útlit sem gefur hárinu nánast spegiláhrif. Fríða Rut Heimisdóttir En hvað er það sem gerir hár glansandi? Leyndarmálið liggur í yfirborði hársins Þegar hárþráðurinn er sléttur og hárflögurnar liggja þétt saman endurkastast ljósið jafnar frá yfirborðinu og hárið fær fallegan glans. Þegar hárið er hins vegar þurrt, skemmt eða úfið dreifist ljósið í allar áttir og hárið getur því litið matt og líflaust út. Þess vegna eru margar af vinsælustu nýjungum síðustu ára ekki hefðbundnar næringar eða maskar heldur sérhæfðar glansmeðferðir sem hjálpa til við að bæta áferð hársins, auka ljóma og skapa það heilbrigða útlit sem flestir sækjast eftir. Mirror Gloss frá Maria Nila – ný kynslóð glansmeðferða Ein mest spennandi nýjung ársins kemur frá sænska hárvörumerkinu Maria Nila sem hefur kynnt nýja línu sem ber nafnið Mirror Gloss. Línan samanstendur af sjampói, næringu, maska og sérhæfðum glansvörum sem vinna saman að því að skapa spegilslíkan glans án þess að þyngja hárið. Sérstaklega vekur athygli Gloss Treatment, sem er glansmeðferð notuð í sturtu og hjálpar til við að auka ljóma samstundis. Einnig hefur Gloss Coat vakið mikla athygli meðal fagfólks. Um er að ræða hitavirkt blásturssprey sem hjálpar til við að draga úr úfningu og gefa hárinu þann gljáa sem svo margir sækjast eftir í dag. Það sem gerir Mirror Gloss línuna áhugaverða er svokölluð Fiber-Filling Technology þar sem peptíð og styrkjandi innihaldsefni hjálpa til við að bæta yfirborð hársins og auka ljósendurkast þess. Maria Nila er jafnframt 100% vegan vörumerki, vottað af PETA, Leaping Bunny og The Vegan Society auk þess að vera B Corp vottað. Merkið sameinar því faglegan árangur og skýra umhverfisstefnu. Kérastase Gloss Absolu – þegar lúxus og glans fara saman Kérastase hefur um árabil verið leiðandi þegar kemur að því að sameina vísindi og lúxus í hárumhirðu. Með Gloss Absolu línunni hefur merkið svarað þeirri miklu eftirspurn sem skapast hefur eftir glansandi, mjúku og heilbrigðislegu útliti hársins. Línan er sérstaklega þróuð fyrir hár sem vantar raka, mýkt og ljóma. Áherslan er á að veita hárinu djúpan raka án þess að þyngja það, sem er lykilatriði fyrir þá sem vilja spegilglans án þess að missa fyllingu eða hreyfanleika. Gloss Absolu línan hefur þróast í nokkrum skrefum frá því hún kom fyrst á markað. Upphaflega samanstóð hún af sjampói, næringu, Anti-Frizz Glaze hitaverndar- og sléttunarspreyi fyrir blástur, ásamt hinum vinsæla hárilm Gloss Absolu Le Parfum og lúxus hárolíunni Glaze Drops. Eftir því sem vinsældir línunnar jukust bættust við vörur sem eru sérstaklega þróaðar fyrir þá sem eru með þykkara, grófara eða úfnara hár. Þar má nefna Gloss Absolu Bain Crème, rakagefandi sjampó sem hjálpar til við að temja úfningu og auka glans. Með því kom einnig Gloss Absolu Masque Crème, nærandi kremmaski sem veitir djúpan raka og mýkt, ásamt Gloss Absolu Frizz Glaze Cream, leave-in mótunarkremi sem hjálpar til við að halda hárinu sléttu og viðráðanlegu jafnvel í raka og hita. Saman mynda vörurnar sérhæfða lausn fyrir þá sem vilja sléttara, glansmeira og viðráðanlegra hár án þess að það verði þungt eða stíft. Moroccanoil High Shine Gloss Mask – þegar glans og næring sameinast Moroccanoil hefur einnig stigið inn á glansmarkaðinn með High Shine Gloss Mask, nýrri meðferð sem sameinar djúpa næringu og glans í einni lúxus hármeðferð. Maskinn er sérstaklega þróaður fyrir hár sem hefur misst ljóma sinn vegna hitatækja, litunar, umhverfisáhrifa eða einfaldlega daglegs álags. Líkt og aðrar vörur frá Moroccanoil byggir maskinn á nærandi olíum sem hjálpa til við að mýkja hárið, draga úr úfningu og auka silkimjúka áferð án þess að þyngja það. Útkoman er hár sem verður mýkra viðkomu, auðveldara í meðförum og með áberandi meiri glans. Fyrir þá sem elska tilfinninguna sem fylgir nýlituðu eða nýblásnu hári getur High Shine Gloss Mask verið fljótleg leið til að endurvekja þann ljóma heima á milli heimsókna á hárgreiðslustofuna. Redken Acidic Color Gloss – glans sem lætur hárið líta út eins og það hafi nýlega verið litað Redken hefur notið mikilla vinsælda með Acidic Color Gloss línunni sem var þróuð til að hjálpa hárinu að endurheimta þann glans og þá silkimjúku áferð sem oft fylgir nýlituðu hári. Línan byggir á sýrujafnvægandi tækni sem hjálpar til við að bæta áferð hársins og auka ljóma þess. Í línunni má meðal annars finna sjampó, næringu og hina vinsælu Activated Glass Gloss Treatment, glansmeðferð sem notuð er í sturtu og virkjast með vatni. Acidic Color Gloss hefur notið sérstakra vinsælda meðal þeirra sem lita hárið reglulega þar sem hún hjálpar til við að viðhalda ferskleika háralitarins og þeim glans sem oft dofnar á milli heimsókna á hárgreiðslustofuna. Joico Defy Damage 7 Second Bond Builder – glans á aðeins sjö sekúndum Þó að margar glansmeðferðir leggi áherslu á yfirborð hársins hafa sumar þeirra einnig þann kost að vinna að styrk og ástandi hárþráðarins sjálfs. Ein slík vara er Joico Defy Damage 7 Second Bond Builder, sem hefur vakið mikla athygli meðal fagfólks fyrir hraðvirka virkni sína og glæsilegan árangur. Um er að ræða létta fljótandi meðferð sem breytist í silkimjúkt krem við snertingu við hárið. Á aðeins sjö sekúndum hjálpar hún til við að draga úr úfningu og auka mýkt, sléttleika og glans. Varan byggir á sömu hugmyndafræði og Defy Damage línan í heild sinni þar sem áherslan er lögð á að vernda hárið gegn daglegu álagi frá hitatækjum, litun og umhverfisáhrifum á sama tíma og hún hjálpar til við að styrkja og bæta áferð hársins. Glans byrjar á heilbrigðu hári Fallegur glans er oft merki um hár sem fær nægan raka, góða næringu og rétta umhirðu. Þegar hárið er vel hirt verður glansinn einfaldlega náttúruleg afleiðing. Sem hárgreiðslumeistari hef ég séð ótal stefnur koma og fara í gegnum árin, en áherslan á heilbrigði hársins hefur aldrei verið jafn mikil og nú. Það er ekki lengur nóg að hárið sé fallega litað eða vel klippt – fólk vill að það líti út fyrir að vera heilbrigt, mjúkt og fullt af lífi. Hvort sem þú velur glansmeðferð í sturtunni, rakagefandi maska, styrkjandi bond-meðferð eða létta olíu sem lokasnertingu er markmiðið það sama: að hjálpa hárinu að endurheimta sinn náttúrulega ljóma.Í dag eru sífellt fleiri að átta sig á því að glans og fallegt útlit hársins snýst ekki eingöngu um vörur sem vinna á yfirborðinu heldur einnig um að styrkja hárið að innan. Ein af þessum vörum sem ég verð einfaldlega að mæla með og finnst að allar stelpur og konur ættu að eiga í hárvöruskápnum sínum er nýi Bond Builder frá Maria Nila. Um er að ræða öfluga leave-in meðferð sem endurbyggir hárið að innan, styrkir það og verndar gegn daglegu álagi frá hitatækjum, litun, sól og öðrum umhverfisáhrifum. Bond-building tæknin hjálpar til við að styrkja innri tengingar hársins sem hafa veikst vegna skemmda og álags, á meðan létt verndandi himna myndast á yfirborðinu sem mýkir hárið, eykur glans og verndar gegn hita allt að 230°C. Fyrir mig er þetta ein af þessum vörum sem hentar ótrúlega mörgum. Hvort sem um er að ræða litað hár, hár sem er reglulega blásið og mótað með hitatækjum eða einfaldlega hár sem vantar meiri styrk, mýkt og glans. Niðurstaðan er sterkara, mýkra og heilbrigðara hár með fallegri áferð og auknum ljóma. Auk þess fylgir vörunni ferskur og hreinn ilmur með tónum af vatnalilju, grænu epli og ananaslaufi sem gerir hana að einstaklega skemmtilegri viðbót í daglega hárumhirðu. Því þegar hárið fangar ljósið á réttan hátt verður það ekki aðeins fallegra. Það virðist heilbrigðara, sterklegra og meira lifandi. Og kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að glans er orðinn nýi lúxusinn í hárumhirðu. Ef þú vilt nálgast vörurnar okkar þá þjónusta þessar hárgreiðlustofur og vefbúðir þeirra þessar línur: www.beautybar.is – www.miomio.is – www.sapa.is Ef þú vilt fylgja okkur á samfélagsmiðlum þá finnur þú okkur undir: Regalofagmenn
Hár og förðun Heilsa Tíska og hönnun Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Sjá meira