Innlent

Þrír fluttir eftir al­var­legt um­ferðar­slys í Reyk­holti

Agnar Már Másson skrifar
Gæslan var kölluð út.
Gæslan var kölluð út. Vísir/Viktor Freyr

Þrír voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem var kölluð út á mesta forgangi á fjórða tímanum í dag vegna umferðarslyss í Reykholti í Borgarfirði.

Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi.

„Það lentu saman tveir bílar og þrír voru fluttir með þyrlu til Reykjavíkur,“ segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, einnig í samtali við Vísi.

Lögregluþjónninn segir að um alvarlegt slys sé að ræða. Klippa hafi þurft tvo úr bílnum.

Allir sem voru í bílunum tveimur voru fluttir með þyrlu til Reykjavíkur, að sögn Ásmundar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×