Sport

Feginn að hafa ekki fengið á­fram­haldandi samning

Andri Broddason skrifar
Daniel Ricciardo er ánægður að ferillinn hans hélt ekki áfram.
Daniel Ricciardo er ánægður að ferillinn hans hélt ekki áfram. Vísir/getty

Daniel Ricciardo segist hafa misst neistann í Formúlu 1 eftir að hafa flakkað á milli liða í lok ferilsins. Hann er þakklátur fyrir að Red Bull hafi stoppað ferilinn hans.

Daniel Ricciardo var einn efnilegasti ökuþór Formúlu 1 og var þekktur fyrir skemmtilegan ökustíl og að vera óhræddur við að fara í áhættusama framúrakstra.

Undir lok ferilsins var fólk byrjað að efast um getu hans þar sem hann náði ekki alveg að standa undir væntingum. Ricciardo gekk til liðs við McLaren og náði í því liði sínum áttunda og síðasta sigri í Formúlu 1. Þrátt fyrir sigurinn var árangurinn hjá McLaren undir væntingum og hann varð liðalaus eftir tveggja ára dvöl hjá McLaren.

Þá héldu margir að Ricciardo væri búinn að vera í íþróttinni en ári seinna keyrði hann með systurliði Red Bull, RB. Þar var hann í tvö ár en heillaði ekki marga og fékk ekki áframhaldandi samning og þurfti að hætta í Formúlu 1 eftir tímabilið 2024. Á því tímabili braut hann hendina sína eftir árekstur í hollenska kappakstrinum og hann fann að það væri byrjunin á endinum.

Hann hafði í raun aldrei meiðst af alvöru en hann fann að neistinn var að fara. Að handleggsbrotna og missa af nokkrum kappökstrum gerði honum engan greiða. Þegar Ricciardo horfir til baka á ferilinn sinn er hann þakklátur fyrir að Red Bull hafi ekki boðið honum annan samning. Hann var ekki í nógu góðu standi til að vera enn þá í Formúlu 1 en hann neitaði að trúa því á þeim tíma.

Ricciardo dáist að Fernando Alonso og Lewis Hamilton en þeir eru báðir komnir á fimmtugsaldurinn en halda áfram að keyra. Það er ekki að sjá að frammistaða þeirra sé að versna en Hamilton er sem stendur í öðru sæti heimsmeistaramótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×