Viðskipti innlent

Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaup­enda­markaður

Atli Ísleifsson skrifar
Helmingur nýrra íbúða á söluskrá eru nú til sölu í meira en 260 daga samkvæmt nýrri skýrslu HMS.
Helmingur nýrra íbúða á söluskrá eru nú til sölu í meira en 260 daga samkvæmt nýrri skýrslu HMS. Vísir/Vilhelm

Fasteignamarkaðurinn á Íslandi er enn í aðlögunarfasa með raunverðslækkunum og hægari sölu. Auglýsingatími íbúða hefur lengst töluvert undanfarið en tæplega fjórðungur allra íbúða sem auglýstar voru til sölu í byrjun júní hafði verið á söluskrá í meira en tólf mánuði samanborið við um 16 prósent á sama tíma í fyrra. Fasteignasalar telja markaðinn enn þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem birt var í dag. Þar segir að helmingur óseldra nýrra íbúða hafi verið á sölu í meira en 260 daga samanborið við 183 daga í júní í fyrra.

Þó nokkrum fjölda kaupsamninga sé þó þinglýst, þótt þeir séu að jafnaði færri en á sama tíma í fyrra.

Hlutdeild fyrstu kaupenda hefur verið talsverð síðustu mánuði þrátt fyrir að fjármögnunarkostnaður fasteigna hafi verið hár um nokkurt skeið. Rýmkun lánþegaskilyrða fyrstu kaupenda og breytingar á reglum um hlutdeildarlán hafa þar áhrif.

Fram kemur að rétt tæplega 40 prósent kaupsamninga í apríl hafi varðað fyrstu fasteignakaup, samkvæmt mælaborði HMS um fyrstu kaupendur. Það sé hæsta hlutfall fyrstu kaupa sem mælst hafi innan mánaðar á því tímabili sem mælaborðið taki til, það er frá á ársbyrjun árið 2007.

Ný­skráð­um leigu­samn­ing­um fækk­ar

Í skýrslunni segir að á leigumarkaði megi jafnframt greina merki um minni eftirspurnarþrýsting.

„Áfram hægir á hækkun leiguverðs sem hefur staðið í stað að raunvirði undanfarið ár. Þá hafa færri nýir leigusamningar tekið gildi í hverjum mánuði í ár samanborið við í fyrra þrátt fyrir að almenn skráningarskylda hafi tekið gildi um áramótin. Fleiri leigusamningar féllu jafnframt úr gildi í nýliðnum maí samanborið við í maí í fyrra, en leigusamningar falla að jafnaði úr gildi í stórum stíl við lok skólaárs á vorin.

Óverð­tryggð lán áfram í meiri­hluta nýrra lána

Lánamarkaðurinn hefur einkennst af aukinni ásókn heimila í óverðtryggð íbúðalán hjá bönkunum undanfarið eftir að verðtryggð lán frá lífeyrissjóðunum höfðu verið allsráðandi í fyrra. Bankarnir hafa lítið nýtt sér undanþáguheimildir frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls, en hærra hámarksveðsetningahlutfall hefur nýst fyrstu kaupendum.

Út­lit fyr­ir að færri íbúð­ir verði full­bún­ar ann­að árið í röð

Byggingarmarkaðurinn hefur verið rólegri það sem af er ári samanborið við undanfarin ár en færri nýjar íbúðir hafa orðið fullbúnar á fyrstu fimm mánuðum þessa árs samanborið við síðustu tvö ár. Hagtölur benda einnig til þess að íbúðafjárfesting hafi dregist saman í ár, auk þess sem starfsfólki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur fækkað lítillega,“ segir í skýrslunni.

Enn mikill kaupendamarkaður

Í skýrslunni segir að fasteignasalar telji markaðinn enn þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður ef marka megi niðurstöður mánaðarlegrar viðhorfskönnunar HMS meðal félagsmanna í Félagi fasteignasala.

Könnunin var lögð fyrir í fjórtánda sinn nú í upphafi júnímánaðar og svarhlutfall var tæplega 32%, en langflestir svarendur miðla aðallega fasteignum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess.

Rétt rúmlega helmingur svarenda telur markaðinn vera kaupendamarkað og um 39% til viðbótar telja að um mikinn kaupendamarkað sé að ræða. Um 10% svarenda telja markaðinn hvorki vera kaupenda- né seljendamarkað en enginn telur að markaðnum megi lýsa sem seljendamarkaði þessa stundina.

Á kaupendamarkaði, þar sem seljendur eru hlutfallslega margir samanborið við mögulega kaupendur, er eðlilegt að verðþrýstingur sé takmarkaður. Það er einmitt mat rétt rúmlega 70% fasteignasala að verð á fasteignamarkaði fari lækkandi þessa stundina. Rétt tæplega 30% svarenda telja verð á markaði vera stöðugt en einungis 1% svarenda telja verð fara hækkandi.

Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan telja fasteignasalar að dregið hafi úr verðþrýstingi á markaðnum undanfarið ár á sama tíma og markaðurinn hefur þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður. Viðhorf fasteignasala er í samræmi við þróun vísitölu íbúðaverðs sem hefur lækkað að raunvirði á ársgrundvelli undanfarna 10 mánuði,“ segir í skýrslunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×