Golf

Rás­tími Gunn­laugs Árna nú settur klukkan 20:20

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Öll augu íslenskra golfáhugamanna verða á Gunnlaugi Árna Sveinssyni í kvöld þegar hann hefur leik á U.S. Open risamótinu í golfi.
Öll augu íslenskra golfáhugamanna verða á Gunnlaugi Árna Sveinssyni í kvöld þegar hann hefur leik á U.S. Open risamótinu í golfi. Getty/Tanner Pearson

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur í dag leik á U.S. Open, sem fer fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York, en hann verður þá fyrsti íslenski karlinn til að taka þátt í þessu risamóti.

Bein útsending frá fyrsta keppnisdegi U.S. Open hófst klukkan fjögur í dag á Sýn Sport.

Veðrið er strax farið að setja strik í reikninginn á U.S. Open en mótið fór af stað í morgun en hafði ekki staðið lengi yfir þegar leik var frestað vegna þoku. Frestunin stóð yfir í um tvær klukkustundir.

Það þýðir að rástími Gunnlaugs Árna verður ekki klukkan 18.20 eins og áður var gefið út heldur er rástími Gunnlaugs nú settur klukkan 20:20 samkvæmt ESPN.

Gunnlaugur er í ráshóp með Taihei Sato frá Japan og Marcelo Rozo frá Kólumbíu.

Síðasti ráshópur fer út klukkan 20.45 en það er nokkuð víst að þessir síðustu ráshópar munu ekki ná að klára hringinn fyrir myrkur. Það er því líklegt að þeir þurfi því að klára fyrsta hringinn sinn eldsnemma í fyrramálið að bandarískum tíma. 

Þar sem Gunnlaugur Árni fer svo seint af stað gæti það orðið hlutskipti hans að spila fyrsta hringinn sinn á tveimur dögum og spila síðan fleiri en átján holur á morgun þar sem annar hringurinn verður spilaður.

Þeir hefja leik á fyrsta hring en einhverjir af kylfingunum þurfa að byrja á tíundu holu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×