„Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 5. júlí 2026 13:54 Lögreglan fylgdist vel með í gærkvöldi. Samsett/Freyja Yfirlögregluþjónn á Vesturlandi er sáttur eftir tónlistarhátíðina Lopapeysuna sem fór fram á Akranesi um helgina. Gönguhópar skiluðu sínu. „
Það gengur mjög vel,“ segir Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, sem stendur nú vaktina sem sér til þess að enginn aki ölvaður. Til stendur að fylgjast með umferðinni fram eftir degi en töluverður fjöldi sótti hátíðina í gærkvöld. Sumir þurfi þó að bíða aðeins eftir því að komast heim, líkt og Jónas orðar það. Ekki séu margir sem að reyni að aka undir áhrifum áfengis. „Nóttin gekk mjög vel og gærkvöldið, það var ekkert alvarlegt sem kom upp,“ segir Jónas. Eitthvað hafi verið um „minniháttar púst“ en gönguhópar lögreglunnar voru afar virkir og komu í veg fyrir að eitthvað alvarlegt ætti sér stað. Lögreglan fylgist með umferðinni til Reykjavíkur.Vísir/Aðsend „Við erum sáttir,“ segir Jónas. Erna Dís Gunnarsdóttir, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir nóttina hafa verið ótrúlega rólega. Settir voru upp umferðarpóstar á Kjalarnesi til að taka á móti þeim sem voru á leið frá Akranesi. „Það gekk ótrúlega vel fyrir sig. Það virðast allir hafa komist heim og ekki verið akandi undir áhrifum, á þessu svæði allavega,“ segir Erna Dís. Tveir í fangaklefa fyrir norðan Heimir Hreiðarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir í samtali að lokaball Pollamótsins hafi gengið nokkuð vel fyrir sig. Fjöldi fólks, sem er misgott í fótbolta, sótti fótboltamótið um helgina. Tjaldsvæði á og við Akureyri eru því smekkfull. Einhver tilfelli hraðaksturs komu á borð lögreglu og voru þrír teknir vegna ölvunaraksturs. Tveir gistu í fangaklefa lögreglunnar á Akureyri í nótt, annar vegna annarlegs ástands og hinn vegna minniháttar líkamsárásar.
Lögreglumál Akranes Akureyri Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira