Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Margrét Helga Erlingsdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 7. júlí 2026 21:29 Donald Trump og Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, á blaðamannafundi í dag. Pool/Osmancan Gürdoğa Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra.
Donald Trump Bandaríkjaforseti er staddur í Ankara á Tyrklandi til að sækja árlegan leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins (NATO). Tónninn var strax settur á blaðamannafundi með Tyrklandsforseta og hann var harður. Þegar Trump var spurður hvernig samningaviðræðum miðaði vegna Grænlands svaraði hann því til að málið hefði skaðað sambandið við NATO. „Grænland hjálpar ekki Danmörku. Danmörk eyðir í raun ekki peningum í að hjálpa Grænlandi en það er mikilvægt fyrir Bandaríkin. Og það er umkringt kínverskum skipum og rússneskum skipum og það mun ekki gerast,“ sagði Trump á blaðamannafundi í tengslum við leiðtogafund NATO. Grænland eigi að vera undir stjórn Bandaríkjanna en ekki Danmerkur. „Þegar þeir vildu ekki fallast á það, og með öllum þeim peningunum sem við eyddum í að hjálpa þeim með Rússland og við þurfum ekki að eyða neinum peningum, gætum við fjarlægt alla hermenn okkar frá Evrópu því eins og þið hafið sennilega tekið eftir er Evrópa allt annar staður en hún var fyrir 20 árum,“ sagði Trump. Trump lét þá í ljós óánægju sína með evrópskar bandalagsþjóðir fyrir að hafa látið hjá líða að hjálpa Bandaríkjunum í stríðinu við Íran. Hann hafi með aðstoðarbeiðni lagt fyrir þær próf. „Ítalía neitaði okkur og Þýskaland neitaði okkur og Frakkland neitaði okkur. Og það er allt í lagi. En af hverju erum við að eyða hundruðum milljarða dala og þau eru ekki til staðar fyrir okkur? Við höfum alltaf verið til staðar fyrir þau.“
NATO Donald Trump Öryggis- og varnarmál Grænland Danmörk Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Tyrkland Tengdar fréttir NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. 7. júlí 2026 18:33 Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Dani ekki verja nægum fjármunum til að hjálpa Grænlandi, og á móti hjálpi Grænlendingar Danmörku ekki nægjanlega vel. 7. júlí 2026 15:24 Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Sjá meira
NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. 7. júlí 2026 18:33
Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Dani ekki verja nægum fjármunum til að hjálpa Grænlandi, og á móti hjálpi Grænlendingar Danmörku ekki nægjanlega vel. 7. júlí 2026 15:24