Nefndi nýja dýrategund eftir markverðinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júlí 2026 08:03 Lionel Messi sækir hér að Vozinha markverði í dramatískum leik Argentínu og Grænhöfðaeyja í 32 liða úrslitunum á HM. Getty/Wu Zhizhao Sæsnigill hefur verið nefndur Aldisa vozinha til heiðurs markverði Grænhöfðaeyja sem sló svo eftirminnilega í gegn á heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Spænski líffræðingurinn og fótboltaáhugamaðurinn Jesus Ortea hefur nefnt nýfundna tegund sæsnigils eftir Vozinha, markverði Grænhöfðaeyja, sem kom knattspyrnuáhugafólki mikið á óvart með því að verja allar marktilraunir Spánverja í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu. World Cup breakout star Vozinha has been honoured with a new species of marine mollusk being named in his honour by a Spanish researcher, the Aldisa vozinha 😂👏 pic.twitter.com/w01wF6xsFt— TSN (@TSN_Sports) July 10, 2026 Ortea uppgötvaði litla, skærrauða lindýrið, sem nú heitir Aldisa vozinha, í Karíbahafi og tímasetti tilkynningu sína þannig að hún félli saman við heimsmeistaramótið. „Við höfum valið nafnið vozinha til heiðurs Vozinha. Hann lék áberandi hlutverk í fyrsta leik lands síns á heimsmeistaramótinu gegn Spáni,“ sagði Ortea í grein sinni. „Litir tegundarinnar eru hugsaðir sem virðingarvottur við það afrek.“ Hinn fertugi Vozinha varð ein af stjörnum mótsins og hjálpaði landi sínu að komast í 32-liða úrslit, þar sem hann átti annan stórleik í dramatísku tapi gegn heimsmeisturum Argentínu í framlengingu. Vozinha var nánast óþekktur fyrir mótið en er nú kominn með yfir 28 milljón fylgjendur á samfélagsmiðlum. Ortea er prófessor emeritus við háskólann í Oviedo og hefur unnið mikið í hafinu í kringum Grænhöfðaeyjaklasann og árið 2023 veitti eyríkið honum heiðursverðlaun þjóðar sinnar. Ástríða hins 75 ára gamla líffræðings fyrir fótbolta hefur áður komið fram í nafngiftum sjávarlífvera eftir Keylor Navas, fyrrverandi markverði Kosta Ríka og Real Madrid, og Quini, framherja Spánar og Sporting Gijon á áttunda og níunda áratugnum. Vozinha was one of the standout performers in this summer’s World Cup, and now the Cape Verde goalkeeper has been recognised by having a newly-discovered species named in his honour.A new species of marine mollusk has been named after the 40-year-old by Spanish researcher Jesus… pic.twitter.com/vgrCDRl2Dh— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) July 10, 2026
Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Real Madrid - Inter Milan | Risaslagur í Madrid Lille - Real Betis | Hákon mættur aftur í Meistaradeildina Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Sjá meira