Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. júlí 2026 15:41 Josephine Nymand er forstöðukona Náttúrufræðistofnunar Grænlands. Náttúrufræðistofnun Grænlands Forstöðukona Náttúrufræðistofnunar Grænlands segir að stofnunin muni ekki taka þátt í samstarfi með bandarískum félögum, stofnunum eða einstaklingum né senda fulltrúa á ráðstefnur í Bandaríkjunum héðan í frá.
Josephine Nymand er forstöðukona Náttúrufræðistofnunar Grænlands og var áður formaður Rannsóknarstofnunar Grænlands. Á tíð sinni þar var hún mikill talsmaður aukins samstarfs vestur á bóginn en síðan þá hefur ýmislegt breyst. Helst kemur þar til greina ítrekaðar hótanir Bandaríkjaforseta um að innlima Grænland með hervaldi og ítrekaðar tilraunir hans til að hafa áhrif á almenningsálit þar með óvinsælum útsendurum. „Við eigum sambönd frá því áður en þetta allt gerðist. Þeim höldum við áfram, það eru vísindamenn sem við höfum unnið með í mörg ár og sem við treystum. En við gerum ekki fleiri samninga eða tökum þátt í nýjum verkefnum með Bandaríkjunum, með samstarfsaðilum sem við þekkjum ekki,“ segir hún í viðtali við grænlenska ríkisútvarpið. Útsendarar í vísindasamstarfi Áður hefur verið fjallað um það á Vísi hvernig bandarískir útsendarar hafa gert tilraunir til að kynda undir óvild í garð Danmerkur meðal Grænlendinga með takmörkuðum árangri. Meðal þeirra sem nefndir hafa verið í þessu sambandi er Tom Dans, athafnamaður sem hefur verið lýst sem „manni Trump á Grænlandi“. Hann er nú orðinn formaður hinnar bandarísku Norðurslóðarannsóknamiðstöðvar. Í kjölfar þess hafa ýmsir aðilar innan þjóðaröryggis- jafnt sem vísindageirans í Danmörku varað við þessu. Josephine Nymand segir til að mynda að Tom Dans hafi fyrir einhverjum mánuðum síðan verið viðstaddur ráðstefnu í Árósum í Danmörku þar sem fulltrúar Náttúrufræðistofnunar Grænlands voru einnig. Þeir síðarnefndu fylgdust með því hvar hann væri staddur hverju sinni svo hægt væri að forðast hann. „Við höfum sagt öllum starfsmönnum okkar og vísindamönnum að þeir skuli ekki ferðast til Bandaríkjanna á ráðstefnur, fundi, verkefni eða annað slíkt,“ segir Josephine Nymand. Þetta er þó ekki aðeins þjóðaröryggisráðstöfun heldur einnig praktísk þar sem að sögn Josephine séu rannsóknir sem þóknast Trump-stjórninni iðulega kæfðar eða í það minnsta ekki fjármagnaðar. Þá séu einnig dæmi um það að bandarískir vísindamenn í samstarfsverkefnum með náttúrufræðistofnuninni eytt gögnum hennar og því sé mikið lagt upp úr samningagerð um gagnaeign með öllum bandarískum samstarfsaðilum. Starfsmenn geti endað í haldi Sömuleiðis hafi borið á því að vísindamönnum sem ferðast til Bandaríkjanna sé gert að upplýsa um aðganga sína á samfélagsmiðlum og að þeim hafi jafnvel ekki verið hleypt inn í landið vegna efnisins þar inni á. „Ég get lítið sem ekkert gert til að aðstoða okkar fólk endi þau í haldi. Þess vegna höfum við sagt að það sé betra að við gerum okkur ekki ferð þangað vestur eins og staðan er núna,“ segir Josephine. „Af þessum ástæðum, og stöðunni almennt, höfum við ákveðið að ganga ekki í samstarf með Bandaríkjunum.“
Grænland Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira