Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2026 06:33 Tobias Halland Johannessen þurfti að flýja hótelherbergið sitt ásamt bróður sínum. Getty/Tim de Waele Frakklandshjólreiðarnar eru í fullum gangi en tveir norskir hjólreiðamenn þurftu að grípa til örþrifaráða til að ná góðum svefni fyrir mikilvægan keppnisdag.
Tvíburarnir Tobias og Anders Halland Johannessen ákváðu nefnilega að færa hótelrúmin sín út á svalir þegar þeir mættu óhreinlæti og ófullnægjandi aðstæðum innandyra á hótelinu sínu. Þeir eru báðir að keppa í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France. Norsku hjólreiðamennirnir hafa sagt frá óvæntum vandræðum sínum við að ná í nætursvefn á samfélagsmiðlum sínum. „Að innan á hótelinu: Vafasamt. Úti: Mjög gott,“ skrifa tvíburarnir við myndband á Instagram sem sýnir að rúmin hafa verið færð utandyra undir berum himni á veröndinni. Daninn Magnus Cort er heldur ekki hrifinn. „Það er með frábæru útsýni og lítur vel út að utan. En í raun og veru er þetta einn versti staður sem ég hef nokkurn tíma gist á,“ skrifaði Cort meðal annars á Instagram og gefur lægstu einkunn (eina af sjö stjörnum). Á X hefur Anders Halland Johannessen birt nokkur myndbönd sem sýna að líf atvinnuhjólreiðamanns er ekki endilega sérstaklega glamúrkennt. Myndskeiðin frá hótelinu sýna meðal annars horn í svefnherberginu með stórum kóngulóarvef. Could be worse, this is ours 🤣 pic.twitter.com/ijPNxKc69Y— Anders H. Johannessen (@AndersHJohanne2) July 13, 2026 Myndböndin eru birt sem svar við þræði sem fjallar um að Tour de France, sigurstranglegasti keppandinn, Tadej Pogacar, og UAE-lið hans hafi gist á hóteli án loftkælingar í hitabeltishitanum í Frakklandi. „Hefði getað verið verra, þetta er okkar (hótel),“ skrifaði Anders Halland Johannessen og lét broskall fylgja með. Lausnin að sofa utandyra virkaði augljóslega vel. „Svefn 7/7, mæli með þessu,“ skrifar Halland Johannessen á Instagram á þriðjudagsmorgun. L’hotel dei corridori della Uno-X Mobility non era esattamente dei migliori…😱🕸️I fratelli Tobias e Anders Halland Johannessen, compagni di squadra e di camera, hanno optato per trasferire i loro letti nel terrazzino della stanza, godendosi una notte sotto le stelle ✨🛏️… pic.twitter.com/b4B9NmP2TJ— Eurosport IT (@Eurosport_IT) July 14, 2026
Hjólreiðar Frakklandshjólreiðarnar Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Real Madrid - Inter Milan | Risaslagur í Madrid Lille - Real Betis | Hákon mættur aftur í Meistaradeildina Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Sjá meira