Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. júlí 2026 10:26 Logi Geimgengill og Svarthöfði mættust loksin í einu eftirminnilegasta atriði kvikmyndasögunnar. Geislasverðið sem Logi Geimgengill sveiflaði í einu frægasta einvígi kvikmyndasögunnar gegn Svarthöfða í Stjörnustríði: Gagnárás keisaradæmisins seldist á uppboði fyrir 3,75 milljónir Bandaríkjadala, eða rétt rúmar 470 milljónir íslenskra króna.
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá en um er að ræða geislasverðið sem Logi notar í hápunkti annarrar stjörnustríðsmyndarinnar sem kom út 1980 rétt áður en Svarthöfði heggur af honum höndina og segir: „Nei, ég er faðir þinn“. „Þetta er einn mikilvægasti Stjörnustríðsgripurinn sem hefur varðveist,“ sagði Joe Maddalena, varaforseti uppboðsfyrirtækisins Heritage Auctions um geislasverðið. „Þetta kemur úr tilfinningalegum hápunkti Gagnárásar keisaradæmisins, atriðinu sem breytti kvikmyndabálknum varanlega og skapaði eitt eftirminnilegasta augnablik kvikmyndasögunnar. Safnarar vissu að þeir væru að bjóða í eitthvað meira en leikmun. Þeir voru að keppast um hlut af nútímagoðafræði.“ Stjörnustríðsgripir selst á mörg hundruð milljónir Upphaflega bauðst geislasverðið á eina milljón dala og var talið að það gæti farið á allt að tvær milljónir. Áhuginn var þó svo mikill að verðið fór upp í 3,75 milljónir sem er metsala fyrir leikmun sem var notaður við gerð Stjörnustríðsmyndanna. Metið tilheyrði áður hálfs metra löngu líkani af X-vængja-orrustuflugvél sem var notað við töku á lokabardaganum í Stjörnustríði: Nýrri von (1977) sem seldist á 3,135 milljónir dala árið 2023. Plakatið sem Tom Jung málaði. Leikmunirnir toppa þó ekki upprunalegt málverk Toms Jung fyrir plakat Stjörnustríðs: Nýrrar vonar sem seldist í fyrra á 3,875 milljónir. En það var auðvitað ekki leikmunur notaður við gerð myndarinnar. Geislasverðið var upphaflega smíðað úr Graflex-blossaljósi (e. flash unit) og fylgir gripnum afsöguð hönd Loga eftir gervahönnuðinn Stuart Freeborn. Geislasverðið kom til uppboðsfyrirtækisins frá Freeborn sjálfum sem lést árið 2013. Uppboðið á geislasverðinu er hluti af Hollywood-uppboði Heritage Auction sem stendur yfir til morgundagsins en þar hafa verið boðin upp hattar úr Galdrakarlinum í Oz (1939) og Willy Wonka and the Chocolate Factory (1971), svifbretti úr Back to the Future II (1989) og teppi úr Big Lebowski (1998).
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira