Sport

„Mercedes ætti að vera með mun meira for­skot“

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton ætlar að leggja sig allan fram til að ná sínum áttunda heimsmeistaratitli.
Lewis Hamilton ætlar að leggja sig allan fram til að ná sínum áttunda heimsmeistaratitli. Mark Sutton/Getty Images

Lewis Hamilton er bjartsýnn fyrir belgíska kappaksturinn og vonar að Ferrari geti haldið áfram góðu gengi. Staðan í heimsmeistaramóti Formúlu 1 er jöfn en það kemur Hamilton á óvart að Mercedes sé ekki búið að stinga af.

Aðeins 25 stig skilja George Russell og Kimi Antonelli að í efstu tveim sætum heimsmeistaramótsins í Formúlu 1. Þeir eru báðir ökumenn Mercedes en Lewis Hamilton hjá Ferrari er aðeins sjö stigum frá Russell í öðru sætinu. Ökumenn fá 25 stig fyrir sigur á kappakstri og því mikil pressa á toppnum.

Mercedes bílarnir hafa verið þeir hröðustu á tímabilinu en bílarnir hafa verið að bila á óhentugum tímum og liðið misst af dýrmætum stigum. Tímabilið í Formúlu 1 er að verða hálfnað og er Hamilton feginn að vera nálægt efsta sæti heimsmeistaramótsins.

„Það er frábært að heimsmeistaramótið sé svona jafnt. Mercedes ætti að vera með mun meira forskot en vonandi heldur mótið áfram að vera spennandi.“

Ánægður að fá stöðugan bíl

Stöðugleiki Ferrari bílsins hefur hjálpað liðinu virkilega þar sem bíllinn hefur lítið sem ekkert bilað. Hamilton hefur enn ekki klárað keppni neðar en sjötta sæti á tímabilinu.

„Liðið er búið að smíða frábæran bíl og ég er virkilega þakklátur. Ég reyni að ná öllum þeim hraða sem ég get út úr bílnum í hvert skipti fyrir liðið. Hver einasti hringur og hvert einasta stig skiptir máli.“

Lewis Hamilton var svekktur í vikunni þegar England tapaði í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta.

„Ég er stoltur af enska landsliðinu að ná eins langt og það gerði. Ég veit hvað þeir voru búnir að leggja mikla vinnu í mótið og ég er mjög svekktur fyrir þeirra hönd.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×