Viðskipti innlent

Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical

Samúel Karl Ólason skrifar
Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical.
Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical. Vísir/Vilhelm

Embla Medical, sem áður hét Össur, hagnaðist um fjóra milljarða króna á öðrum fjórðungi ársins. Jókst hann um 39 prósent, borið saman við hagnað á sama ársfjórðungi í fyrra. Forstjóri fyrirtækisins segir vöxtinn fyrst og fremst drifinn af kröftugum innri vexti í stoðtækjum og góðum árangri nýrra vara.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri Emblu Medical.

Þar segir að sala á öðrum ársfjórðungi 2026 hafi numið 32 milljörðum króna, sem samsvari ellefu prósenta heildarvexti og sex prósenta innri vexti.

Innri vöxtur í sölu stöðtækja nam tólf prósentum en vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var eitt prósent. Þá drógust tekjur af þjónustu við skjólstæðinga saman um tvö prósent.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir var sjö milljarðar króna. Það jafngildir 22 prósenta EBITDA-framlegð, samanborið við 21 prósent á sama tímabili í fyrra.

Eins og áður segir var hagnaðurinn fjórir milljarðar, sem samsvarar ellefu prósentum af veltu.

Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar hér á vef Emblu Medical.

Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Mediacl, segir að sala á ársfjórðungnum hafi verið sterk.

„Vöxturinn var fyrst og fremst drifinn áfram af kröftugum innri vexti í stoðtækjum, áframhaldandi góðu gengi í EMEA [Evrópa, Mið-Austurlönd og Afríka] og APAC [Asía og Kyrrahafið] og góðum árangri nýrra vara. Vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var hóflegur, en tekjur af þjónustu við skjólstæðinga lækkuðu á fjórðungnum.

EBITDA-framlegð var sterk á fjórðungnum, 22%, sem er hækkun um eitt prósentustig frá öðrum ársfjórðungi 2025. Hagnaður félagsins var einnig mjög góður og jókst um 39% á fjórðungnum. Með hliðsjón af afkomu fyrri árshelmings og væntingum um sterkari vöxt á seinni hluta ársins höfum við þrengt fjárhagsáætlun ársins fyrir innri vöxt í 5–7%, en áætlun um EBITDA-framlegð helst óbreytt í 20–22%.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×