Sport

„Klappað fyrir manni þegar maður mætti“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Arnar Daði var öryggið uppmálað milli stanganna í gær og var mættur í bæjarvinnu Mosfellsbæjar klukkan átta í morgun.  
Arnar Daði var öryggið uppmálað milli stanganna í gær og var mættur í bæjarvinnu Mosfellsbæjar klukkan átta í morgun.   vísir / guðmundur

Markmaðurinn Arnar Daði Jóhannesson var hetja Aftureldingar gegn Fylki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í gærkvöld, þegar hann varði fleiri vítaspyrnur í einni vítakeppni en hann hafði gert á öllum ferlinum fram að þessu. Hetjan tók sér samt ekkert frí frá vinnu í morgun.

Æsispennandi undanúrslitaleikur Fylkis og Afturelding fór fram í Árbænum í gær og sveiflaðist í báðar áttir en endaði með 1-1 jafntefli. Eftir framlengingu var haldið í vítaspyrnukeppni og þar tryggði Arnar Daði sigur Aftureldingar með því að verja þrjú víti frá Fylkismönnum.

„Ég held að ég hafi varið tvö víti fyrir þessa keppni, þannig að ég var ekki að búast við þessu. En að taka þrjú víti af sex, mér finnst það bara drullu vel gert. Þetta var ein besta tilfinning sem ég hef upplifað. Það var allt á milljón, ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að gera við mig, þannig að ég hljóp bara upp í stúku og faðmaði fyrsta mann sem ég sá,“ sagði Arnar.

Fyrsti maðurinn sem hann sá í stúkunni var einmitt Jökull Andrésson, markmaður Aftureldingar á síðasta tímabili og núverandi markmaður FH í Bestu deildinni.

„Við erum mjög góðir vinir, spjöllum mikið og golfum mikið saman. Það var geggjað að fara til hans í stúkunni,“ sagði Arnar.

Arnar og Jökull faðmast eftir leik. vísir / GUÐMUNDUR

Eins og sannri bæjarhetju sæmir var Arnari boðið að taka sér frí frá bæjarvinnu Mosfellsbæjar í morgun en hann ákvað samt að mæta á slaginu átta.

„Maður verður nú að sinna vinnunni líka, það er mikilvægt. Þetta er líka geggjaður hópur að vinna hérna, skemmtilegt fólk og geggjaðir krakkar. Það var klappað fyrir manni þegar maður mætti, smá fögnuður,“ sagði Arnar.

Arnar á öxlum fyrirliðans Axels Óskars eftir leik.vísir / guðmundur

Þó Afturelding sé á leið á Laugardalsvöll í þriðja sinn á fjórum árum hefur Arnar ekki enn spilað þar. Hann sat á bekknum í umspilsleikjum liðsins í Lengjudeildinni 2023 og 2024 en hlakkar til að standa á milli stanganna í bikarúrslitunum.

„Þetta verður geggjað, að spila á svona stóru sviði fyrir framan allt fólkið úr Mosó. Þetta verður óraunverulegt… Ætli ég taki ekki þrjú aftur,“ sagði Arnar léttur að lokum.

Viðtal við Arnar Daða má sjá í spilaranum efst í fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×